Viðskipti erlent

Ný vél leyfir þér að blanda kók heima hjá þér

Bjarki Ármannsson skrifar
Skyldi gripurinn koma í sölu á Íslandi?
Skyldi gripurinn koma í sölu á Íslandi? Vísir/AP
Ert þú forfallinn aðdáandi Coca-Cola, vinsælasta gosdrykks veraldar? Átt þú 40.000 krónur aflögu? Þá getur þú bráðum hafist handa við að blanda þitt eigið kók í eldhúsinu heima.

Bandaríska fyrirtækið Keurig Green Mountain hóf í dag sölu á Keurig Kold, vél sem skammtar kalda drykki á borð við Coca-Cola, Sprite og Dr. Pepper. Vélin notast við einnota hylki, líkt og margar kaffivélar.

Að því er fréttastofa AP greinir frá, gæti vélin kostað um 300 bandaríkjadali (um 40.000 íslenskar krónur) og hvert hylki um 1,2 dali (150 krónur). Það verður því áfram ódýrara að kaupa gosdrykki í flöskum og dósum en framkvæmdastjóri Keurig bendir á að vélin tekur minna pláss en margar flöskur en býður samt upp á mikið úrval drykkja.

Coca-Cola fyrirtækið virðist í það minnsta bjartsýnt á gott gengi Keurig Green Mountain og hefur fest kaup á 16.8 prósenta hlut í fyrirtækinu. 

Hægt er að virða gripinn fyrir sér í umfjöllun CNBC hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×