Viðskipti erlent

Ný tækni gæti gert Facebook kleift að fylgjast betur með þér

Bjarki Ármannsson skrifar
Facebook hefur sótt um einkaleyfi á aðferð til að teikna upp „fingrafar“ myndavélar þinnar.
Facebook hefur sótt um einkaleyfi á aðferð til að teikna upp „fingrafar“ myndavélar þinnar. Vísir/Getty
Samskiptamiðillinn Facebook sótti í byrjun árs um einkaleyfi á aðferð til þess að rekja uppruna mynda sem settar eru inn á vefinn. Aðferðin felst í því að skoða myndir notenda til að átta sig á einkennum myndavélanna sem þær voru teknar á, til dæmis rispum á linsu eða óvenjulegri stöðu pixla.

Þannig má segja að Facebook gæti búið til nokkurskonar „fingrafar“ af myndavélinni og til dæmis tekið eftir því ef tveir ólíkir notendur setja inn myndir sem teknar eru á sömu myndavél.

Í frétt Business Insider í Bretlandi er nokkuð óhugnanleg ályktun dregin út frá þessu, nefnilega að Facebook geti rakið mynd sem þú tekur á símann þinn eða myndavél til þín jafnvel þó þú sýnir ekki andlit þitt eða muni í þinni eigu á myndinni. Þetta er jafnframt hægt að gera þó þú fjarlægir hefðbundin lýsigögn (e. metadata) af myndunum.

Facebook segir sjálft að þessari aðferð mætti til dæmis beita til að átta sig á því hvort tveir notendur þekkist svo hægt sé að stinga upp á vinskap milli þeirra. Einnig gæti tæknin nýst við að sía út notendur sem síðan hefur sett í bann og þeir opnað nýjar síður undir öðru nafni.

Samkvæmt Business Insider virðist Facebook ekki enn hafa tekið aðferðina upp og ekki er í raun víst að það verði nokkurn tímann gert.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×