Viðskipti erlent

United airlines í vandræðum

Sæunn Gísladóttir skrifar
Sala United airlines var undir væntingum á síðasta ársfjórðungi.
Sala United airlines var undir væntingum á síðasta ársfjórðungi. Vísir/Getty
Bandaríska flugfélagið United Continental á í miklum vandræðum um þessar mundir. Í dag tilkynnti félagið að sala á þriðja ársfjórðungi hefði dregist saman milli ára og að sölumarkmið hefðu ekki náðst.

Ódýrara hráolíuverð hefur auðvelda United reksturinn að hluta til, hins vegar eru færri starfsmenn olíufyrirtækja að ferðast með flugfélaginu sem hefur dregið úr tekjum.

Félagið á einnig við persónuleg vandræði að stríða en nýr forstjóri þess, Oscar Munoz, sem skipaður var í september fékk hjartaáfall í dag. Hann mun því taka veikindaleyfi frá störfum sínum og mun Brett Hart sinna forstjórastarfinu á meðan.

Aðrir rekstrarliðir hafa gengið illa. Nýjar flugleiðir hafa ekki gengið. Árið 2012 var tilkynnt um nýja flugleið tvisvar í viku frá Newark til Columbia í Suður Karólínu, hætt var að fljúga þangað í mars 2014. United og Continental sameinuðust fyrir fimm árum síðan og enn er verið að vinna að sameiningunni. Því er ljóst að félagið mun þurfa að vinna í sínum málum næstu misseri til að ná sér aftur á strik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×