Menning

Beiting söngraddar í bíómyndum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Ég er svo heppin að geta starfað við tónlist,“ segir Þórhildur.
"Ég er svo heppin að geta starfað við tónlist,“ segir Þórhildur. Mynd/Daníel Starrason
Er nokkuð mennskara en röddin? nefnist fyrirlestur sem Þórhildur Örvarsdóttir söngkona heldur í dag klukkan 17 í Verkmenntaskólanum á Akureyri, stofu M01. Þar lýsir hún ferli sínum í erlendri kvikmyndatónlist. „Ég hef sungið inn á nokkrar bíómyndir. Kvikmyndatónlist byggist mikið á stefjum sem gefa til kynna ákveðna karaktera og draga fram áherslur og áhrif. Ég hef sungið stef móður, kvenhetju og bernskuminninga, svo ég nefni dæmi – en ekki bara sakleysislegt sánd því nauðsynlegt er að geta beitt mörgum blæbrigðum raddarinnar.“

The Eagle og Man of Steel eru meðal mynda sem Þórhildur hefur sungið inn á. „Þessi verkefni komu til í gegnum bróður minn, Atla, sem er kvikmyndatónskáld og hefur verið búsettur lengi í Bandaríkjunum. „Ég söng ekki texta og ekki lög, heldur bakgrunnstónlist sem tónskreytir myndirnar og á að hafa áhrif á undirmeðvitund áhorfandans, ef allt virkar eins og það á að gera. Söngvarinn verður að vera vel meðvitaður um hvað er að gerast á tjaldinu og ná að draga fram viðeigandi tilfinningar,“ lýsir hún.

Þórhildur kennir við Tónlistarskólann á Akureyri auk þess að taka að sér verkefni við raddþjálfun. „Ég er svo heppin að geta starfað við tónlist og partur af því er að miðla minni þekkingu. Það hefur verið mikið að gera hjá mér frá því ég kom úr námi frá Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn vorið 2008. Nú er ég til dæmis að raddþjálfa í The Voice á Skjá einum.“

Auk þess sem að ofan er talið er Þórhildur í hljómsveitinni Torrek og Norðurlandsdeild KÍTÓN, samtaka kvenna í tónlist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×