Slegist og sæst við sérpantaða Kínverja Guðrún Ansnes skrifar 27. nóvember 2015 08:00 Æfingar ganga vel, en verkið verður frumsýnt í lok desember. Þá hafa þær eflaust fallið allnokkrar í valinn. Vísir/GVA
Þetta er bara íslenska þjóðin, fólkið sem þarf að kristna,“ segir Ilmur Stefánsdóttir, leikmyndahönnuður sýningarinnar Njálu, um eitt þúsund uppblásna líkama sem nú hafa yfirtekið Borgarleikhúsið. „Það eru um fimm til sex hundruð manns sem látast í Njálu, og því sterk þörf fyrir að það sé mikill massi af fólki í sýningunni,“ útskýrir Ilmur þegar hún er spurð hvernig standi á þessari nýju viðbót leikhússins, sem sérpöntuð var alla leið frá Kína fyrir verkið. „Þeir eru búnir að standa í ströngu síðan þeir lentu, en greyin hafa þegar verið skírð, barin og látin bregða sér í allra kvikinda líki. Flestir verða naktir, en svo eru nokkrir sem landa veigameiri hlutverkum og fá að vera í fötum,“ bendir Ilmur á og skýtur að að einhverjir hafi nú þegar gifst lifandi mótleikurum sínum. „Þetta hefur allt saman verið ofboðslega skemmtilegt og sérlega gaman að vinna með þessar brúður, en við höfum ekki haft svona áður,“ segir Ilmur. Svona staðgenglar eru mikið notaðar í Hollywood-kvikmyndum svo þær ættu að vera vanar því að láta djöflast rækilega í sér, og ekki eru þeir fáir bardagarnir í Njálu sem bíða þeirra. Það gæti þó komið einhverjum á óvart, en brúðurnar eru líklega gulleitari en meðalmaðurinn sem uppi var á Njálutíma. „Við pöntuðum húðlitaðar gínur, en svo auðvitað er hugtakið húðlitaður algjörlega afstætt, sama hvar í heiminum maður býr og náttúrulega bara úrelt orð, svo við enduðum með þessar,“ segir Ilmur og skellihlær. Starf Ilmar er sveipað heilmiklum ævintýraljóma, en hún sér um að skapa gríðarstóran part af upplifun leikhúsgesta, þar sem hún býr jú til leikmyndina. „Þetta er ofboðslega skemmtilegt og margt klikkað sem verður til. Í leikmynd Dúkkuhússins notaði ég til að mynda fimm tonn af sandi og svo hef ég gert heila leikmynd úr leikhústeipi og pappa, það tók marga mánuði,“ útskýrir hún og bendir á að brúðurnar góðu séu alls ekkert það klikkaðasta í uppsetningu Njálu. Nú þegar sé kominn til sögunnar sex metra bólstraður grasveggur og risastór skip, svo ætla má að úr verði stórbrotið sjónarspil. Var að traðka mína í spað„Þetta er einstaklega þægilegt, búkar með haus og hendur og það þarf ekkert mikið að gerast svo þær breytist úr karli í konu eða öfugt. Síðan er svo mikið til af þessu að maður má gera hvað sem er. Ég var til dæmis að traðka eina í spað og reka hana á hol, ekkert vesen,“ segir Björn Stefánsson leikari sem fer með hlutverk í sýningunni og hefur þar af leiðandi heilmikla reynslu af þessum meðfærilegu mótleikurum.
Menning Mest lesið „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Tónlist Ógleymanlegt fermingarpils enn í uppáhaldi Tíska og hönnun Tæpur helmingur íbúa hefur séð myndina Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Hollywood stjörnur, þjóðarréttir og pólitík Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið Geggjað heimatilbúið „Twix“ Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Eignaðist alvöru pungsa með alvöru pungsa Lífið Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira