Viðskipti erlent

Íran semur um olíusölu til Kína

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá kynningu olíuiðnaðarins í Íran í fyrra.
Frá kynningu olíuiðnaðarins í Íran í fyrra. Vísir/EPA
Yfirvöld í Íran hafa nú samið um að selja olíu til Kína. Þar að auki leita þeir nýrra kaupenda og vinna að aukinni olíuframleiðslu eftir að viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna og Evrópusambandsins verði hætt niður á næsta ári. Gert er ráð fyrir að þvingununum verði aflétt snemma á næsta ári.

Þá leita yfirvöld að fjárfestum til að taka þátt í nýjum verkefnum við eflingu iðnaðarins í Íran.

Viðskiptaþvingunum hefur verið beitt gegn Íran að einhverju leyti frá árinu 1979 þegar starfsmenn sendiráðs Bandaríkjanna í Teheran voru teknir í gíslingu. Árið 2013 voru þvinganirnar hertar vegna kjarnorkutilrauna Íran.

Í frétt Reuters kemur fram að á árum áður var Íran annar stærsti útflytjandi Samtaka olíuútflutningsríkja og stefna yfirvöld þar á að ná aftur fyrri markaðsstöðu. Til stendur að auka olíuframleiðslu í Íran um 500 þúsund tunnur. Það samsvarar um helmingi núverandi útflutnings ríkisins.

Ljóst er að slík aukning er viðkvæm pólitískt séð þar sem nágrannaríki Íran, eins og Sádi-Arabía, munu ekki taka því fagnandi. Olíusala er helsta tekjulind Sáda, en offramleiðsla hefur leitt til mikillar verðlækkunar síðustu mánuði. Verðið hefur jafnast eitthvað en ástandið þykir enn viðkvæmt.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×