Viðskipti erlent

Stýrivextir hækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í áratug

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Með ákvörðun Seðlabankans lýkur fordæmalausu tímabili lágra stýrivaxta í Bandaríkjunum
Með ákvörðun Seðlabankans lýkur fordæmalausu tímabili lágra stýrivaxta í Bandaríkjunum Vísir/Getty
Seðlabanki Bandaríkjanna hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0.25 prósentustig. Er þetta í fyrsta sinn í nærri áratug sem stýrivextir eru hækkaðir í Bandaríkjunum.

Stýrivextirnir voru fyrir ákvörðun dagsins á bilinu 0-0.25 prósentustig en verða nú á bilinu 0.25-0.5 prósentustig.

Í rökstuðningi nefndarinnar sem tekur ákvörðunina segir að staða á atvinnumarkaði í Bandaríkjunum hafi batnað til muna að undanförnu og gerir hún ráð fyrir því að verbólga muni aukast á næstunni. 

Hefur hún verið lág að undanförnu í Bandaríkjunum og telur Seðlabankinn að verðbólgan muni ná verðbólguspám bankans sem gera ráð fyrir tvö prósent verðbólgu. Því sé rétt að bregðast við með að hækka stýrivexti.

Með ákvörðun Seðlabankans lýkur fordæmalausu tímabili lágra stýrivaxta í Bandaríkjunum sem voru hluti aðgerða stjórnvalda þar í landi til að bregðast við efnahagskreppunni miklu sem hófst árið 2008.

Í desember það ár lækkaði Seðlabankinn stýrivexti niður í 0-0.25 prósent og hafa stýrivextirnir haldist á því bili síðan. Fyrir árið 2008 hafði Seðlabankinn aldrei lækkað stýrivexti niður fyrir 0.63 prósentustig.

Hér fyrir neðan má sjá línurit sem sýnir þróun stýrivaxta í Bandaríkjunum frá árinu 2005.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×