Menning

Leika Mozart við kertaljós víða í kirkjum nú fyrir jólin

Magnús Guðmundsson skrifar
Kammerhópurinn Camerarctica heldur víða tónleika á næstunni.
Kammerhópurinn Camerarctica heldur víða tónleika á næstunni.
Kammerhópurinn Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin. Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart við kertaljós í tuttugu og þrjú ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu.

Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason klarinettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari, Svava Bernharðsdóttir víóluleikari og Sigurður Halldórsson sellóleikari ásamt góðum gesti, Einari Jóhannessyni sem leikur á eitt af uppáhaldshljóðfærum Mozarts, bassetthornið.

Á efnisskránni í ár eru Kvintettar fyrir klarinettu, bassetthorn og strengi, Allegro úr Divertimento fyrir strengi og Kvartett fyrir klarinettu og strengi.

Einnig syngja tveir ungir söngvarar, þeir Björn Ari Örvarsson og Tryggvi Pétur Ármannsson, Ave Maria úr Cosi fan tutte. Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða, Í dag er glatt í döprum hjörtum, sem er úr Töfraflautunni eftir Mozart.

Tónleikarnir verða í Hafnarfjarðarkirkju laugardagskvöldið 19. desember, í Kópavogskirkju, sunnudagskvöldið 20. desember, í Garðakirkju mánudagskvöldið 21. desember og loks í Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudagskvöldið 22. desember.

Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast þeir allir klukkan 21.00. Aðgangseyrir er 2.500 krónur og 1.500 krónur fyrir nemendur og eldri borgara. Frítt er inn fyrir börn. Miðasala við innganginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×