Menning

Ver drjúgum hluta lífsins úti í íslensku landslagi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Kristján tengir málverk sín við náttúruna.
Kristján tengir málverk sín við náttúruna. Mynd/úr einkasafni
Kristján Jónsson, lista- og leiðsögumaður, opnar sýningu sína Portrett og landslag í Galleríi Gróttu á Eiðistorgi í dag, 10. desember, klukkan 17. Allir eru velkomnir þangað.

Líkt og titillinn gefur til kynna er viðfangsefni sýningarinnar sótt í gamalkunnug stef myndlistararfsins. Kristján kveðst með því vilja hylla okkar ástsælu landslagsmálara og um leið máta sig við þá málarahefð, sem flestir þekkja, en með persónulegri nálgun. 

Hann ver drjúgum hluta lífs síns úti í íslensku landslagi því hann starfar sem leiðsögumaður fyrir erlenda ferðamenn.

Kristján stundaði nám í Escola Massana listaskólanum í Barcelona og hefur sýnt reglulega bæði hér á landi og erlendis síðustu 20 ár.

Gallerí Grótta er á annarri hæð á Eiðistorgi, við hlið Bókasafnsins. 

Sýningin stendur til 8. janúar og aðgangur er ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×