Bílar

Leaf tvöfalt söluhærri en Tesla

Finnur Thorlacius skrifar
Nissan Leaf.
Nissan Leaf.
Sala rafmagnsbíla hefur tekið drjúg stökk á síðustu misserum og loksins er hægt að fara að tala um sölu nokkurra gerða þeirra í hundruðum þúsunda. Það telur þó furðu lítið í yfir 80 milljón bíla sölu á ári í heiminum öllum.

Tesla er nú í þessum mánuði búið að selja 100.000 Model S bíla frá því hann var markaðssettur fyrir ríflega 3 árum. Honum hefur verið afar vel tekið þrátt fyrir fremur hátt verð. Rétt um 60.000 þessara 100.000 Model S bíla hafa selst í Bandaríkjunum og þar seljast flestir þeirra með verðmiða yfir 100.000 dollara, eða 13 milljón krónur.

Því er kannski ekki skrítið að öllu ódýrari rafmagnsbíll sé sá söluhæsti í heiminum, þ.e. Nissan Leaf, en hann hefur selst í 200.000 eintökum um allan heiminn frá því hann kom á markað fyrir um 5 árum síðan.

Einn annar bíll sem telst rafmagnsbíll hefur náð yfir 100.000 eintaka sölu frá upphafi, en það er Chevrolet Volt og náði hann því á undan Tesla Model S. Hann hefur verið í sölu í svipaðan tíma og Nissan Leaf. Stutt er í að nýjar gerðir Nissan Leaf og Chevrolet Volt verði kynntar og þá má búast við góðri sölu á báðum bílunum.






×