Ætla að koma öllum í gott skap Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 15. janúar 2015 14:30 Jóhann G. Jóhannsson, Bryndís Pétursdóttir, Eydís Franzdóttir, Bryndís Björgvinsdóttir, Steef van Oosterhout og Herdís Anna Jónsdóttir. „
Við frumflytjum verkið What the Heck? sem Jóhann G. Jóhannsson samdi fyrir okkur Dísurnar og Steef van Oosterhout slagverksleikara. Það er glænýtt og bráðskemmtilegt og kinkar kolli í átt að barokki, djassi og blúsi og danstöktum.“ Þannig byrjar Eydís Franzdóttir óbóleikari að lýsa efni tónleika sem kvartettinn Dísurnar heldur í Norræna húsinu á sunnudag klukkan 15.15. „Þau Herdís Anna Jónsdóttir og Steef flytja líka verkið Fimm lög frá Gautlöndum sem Snorri Sigfús Birgisson vann upp úr gömlum þjóðlögum sem afasystir Herdísar Önnu söng á sínum tíma inn á band. Svo verður leikinn litríkur kvartett eftir finnska tónskáldið Rautavaara og kvikmyndatónlist Nino Rota sem Jóhann G. setti saman í eina syrpu og hefur slegið í gegn hvar sem við höfum spilað hana. Það er músík sem fólk þekkir og kemur öllum í gott skap.“
Menning Mest lesið „Við munum ekki eldast saman“ Lífið Tæpur helmingur íbúa hefur séð myndina Bíó og sjónvarp „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Tónlist „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið Ógleymanlegt fermingarpils enn í uppáhaldi Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Hollywood stjörnur, þjóðarréttir og pólitík Lífið Geggjað heimatilbúið „Twix“ Lífið Hyggjast halda breytta Söngvakeppni á næsta ári Lífið Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira