Menning

Myndar veðrabrigði

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Við Geststaðavatn í Krýsuvík.
Við Geststaðavatn í Krýsuvík. Guðlaugur
„Myndirnar mínar eru frá Berlín og Íslandi, þær íslensku flestar teknar á Kjalarnesi og í Krýsuvík,“ segir Guðlaugur Bjarnason sem hefur opnað ljósmyndasýningu í Anarkíu, listasal í Kópavogi. Hann kveðst líka vera með tréskúlptúra sem tengjast ljósmyndasýningunni.



Dóttir Guðlaugs er tónlistarkonan Ingibjörg Azima.

Um klukkan 16 verður tónverkið Veðrabrigði eftir hana frumflutt á sýningunni við ljóð Guðlaugs sem urðu til við tökur á myndaseríunum Íshljómar-Bláminn-Norðanbál. Flytjendur eru básúnukvartettinn Los Trombones trans Atlantico og Magga Stína.

Stefnt er að því að flytja tónverkið einnig aðrar helgar meðan á sýningunni stendur sem er til 29. mars.

Guðlaugur lauk námi við Myndhöggvaradeild MHÍ 1988, fór á steinhöggvaranámskeið á Gotlandi sama ár. 1990 lá leiðin til Þýskalands í Kunst Akademie Düsseldorf, þar lauk hann námi sem Meisterschuler 1994. Hann bjó í Berlín frá 1995 til ársins 2012 er hann snéri aftur til Íslands. Guðlaugur hefur haldið fjölda sýninga og tekið þátt í fjölmörgum verkefnum og samsýningum í Skotlandi, Póllandi, Svíþjóð og Þýskalandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×