Viðskipti erlent

Bandaríska hagkerfið brothætt

jón hákon halldórsson skrifar
AGS telur hagkerfið standa frammi fyrir hættu.
AGS telur hagkerfið standa frammi fyrir hættu. Nordicphotos/getty
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur að hætta steðji að bandaríska fjármálakerfinu. Þetta kemur fram í skýrslu sjóðsins, sem er sú fyrsta sinnar tegundar frá árinu 2010. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur þó að meira jafnvægi sé í ríkisbúskapnum nú en fyrir bankakrísuna 2008.

Ein aðalgagnrýni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í garð Bandaríkjanna er að bankarnir séu of stórir. Þeirra á meðal eru JPMorgan Chase og Wells Fargo. Telur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn að efnahagsreikningur þessara banka sé of stór eftir að þeir hafi yfirtekið eignir banka sem hrundu í fjármálakreppunni. „Stórir og tengdir bankar tröllríða bankakerfinu í meiri mæli nú en nokkru sinni fyrr,“ hefur CNN fréttastofan eftir skýrsluhöfundum. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur líka miklar áhyggjur af því sem hann kallar skuggabankakerfið. Vogunarsjóðir, eignastýringafyrirtæki og tryggingafyrirtæki stýra núna 70 prósentum allra eigna og það skapar kerfisáhættu.

Þá segir Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn að lágir vextir hvetji fjárfesta til þess að taka sífellt meiri áhættu. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir líka viðvörunarljós vera farin að kvikna á hlutabréfamarkaði. Hlutabréfaverð sé að verða hærra en afkomuspár fyrirtækjanna gefi tilefni til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×