Bílar

Toyota toppar Volkswagen í sölu ársins 2015

Finnur Thorlacius skrifar
Toyota Hilux.
Toyota Hilux.
Á fyrri helmingi síðasta árs náði Volkswagen að selja fleiri bíla en Toyota á heimsvísu, en það hefur aftur snúist við og alla síðustu 6 mánuði ársins var sala Toyota meiri en Volkswagen.

Að nóvember mánuði liðnum hafði Toyota selt 9,21 milljón bíla á árinu en Volkswagen 9,10 milljón bíla. Í nóvember féll til að mynda sala Volkswagen um 2,2% og salan var einnig minni í október en í sama mánuði árið 2014.

Toyota hefur til nóvemberloka náð að selja 1,0% fleiri bíla en árið 2014, en Volkswagen 1,7% færri bíla. Því eru allar líkur til þess að söluhæsti bílaframleiðandi heims í fyrra sé Toyota, þó afar litlu muni á fyrirtækjunum tveimur.






×