Bílar

Mercedes-Benz aldrei selt fleiri bíla á einu ári

Finnur Thorlacius skrifar
Mercedes Benz C-Class.
Mercedes Benz C-Class.
Mercedes-Benz setti sölumet á árinu 2015 en þá seldust alls 1.871.511 bifreiðar þýska lúxusbílaframleiðandans á heimsvísu. Aldrei í sögu Mercedes-Benz hefur lúxusbílaframleiðandinn selt fleiri bíla á einu ári.

Salan á síðasta ári var 13,4% hærri en árið 2014 sem þá var söluhæsta ár fyrirtækisins. Þetta var raunar fimmta árið í röð sem Mercedes-Benz sló eigið sölumet. Þá setti Mercedes-Benz auk þess sölumet í desember sl. en þá seldi lúxusbílaframleiðandinn 178.017 bifreiðar og var þetta söluhæsti desember mánuður í sögu fyrirtækisins.

Mercedes-Benz fagnaði einnig þeim árangri að ná besta ársfjórðungi í sögu fyrirtækisins frá september til desember en þá seldust alls 495.159 bifreiðar á heimsvísu.

Hér á Íslandi hefur sala Mercedes-Benz einnig aukist og Bílaumboðið Askja, umboðsaðili þýska lúxusbílaframleiðandans, seldi alls 490 nýja Mercedes-Benz bifreiðar á árinu 2015, og þar af voru 330 skráðir Mercedes-Benz fólksbílar. Mercedes-Benz hefur undanfarin ár verið mest selda lúxusbílamerkið á Íslandi.






×