Viðskipti erlent

Íranir segja órökrétt að setja framleiðsluþak á olíu

Atli Ísleifsson skrifar
Olíuverð hefur fallið umtalsvert undanfarna mánuði.
Olíuverð hefur fallið umtalsvert undanfarna mánuði. Vísir/AFP
Sendifulltrúi Íran gagnvart Samtökum olíuframleiðenda (OPEC) segir það órökrétt að gangast undir samkomulag þeirra ríkja sem vilja koma á framleiðsluþaki á olíu og með því að halda olíuframleiðslu á framleiðslustigi janúarmánaðar.

BBC greinir frá þessu.

Rússland, Venesúela, Katar og Sádi-Arabía tilkynntu um ákvörðun sína í gær, en þetta er í fyrsta sinn í um fimmtán ár sem slíku þaki er komið á.

Samkomulagið er gert til að draga úr verðfalli á hrávörumarkaði, en olíuverð hefur fallið umtalsvert undanfarna mánuði. 

Mehdi Asali, fulltrúi Írans gagnvart OPEC, segir að Íranir muni halda áfram að auka framleiðslu þar til hún jafnast á við þá sem var áður en viðskiptaþvingunum var komið á.


Tengdar fréttir

Gera samkomulag um framleiðsluþak á olíu

Olíuráðherrar þriggja Opec landa, Sádí arabíu, Katar og Venesúela, auk Rússlands, hafa gert samning um að halda olíuframleiðslu á framleiðslustigi janúarmánðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×