Viðskipti erlent

Gates reiknar dæmið

Samúel Karl Ólason skrifar
Bill Gates.
Bill Gates. Vísir/Getty
Bill Gates þykir magnað hve litlu varið sé til rannsókna á nýjum orkugjöfum í Bandaríkjunum. Í nýju myndbandi fer hann gróflega yfir tölurnar. Með því vill hann benda á að Bandaríkjamenn eyði meira í bensín á einni viku en fer til orkurannsókna á einu ári.

Ef marka má ummælin við myndbandið þykir mörgum merkilegra að Bill Gates sé örvhentur.

Gates hefur varið miklum fjármunum og tíma í að kalla eftir hreinni orku og umhverfisvernd undanfarin ár. Þá birti hann svipað myndband á dögunum þar sem hann fer yfir hvernig draga megi úr losun koltvísýrings á jörðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×