Bílar

4.000 hestafla Corvetta fer kvartmíluna á 4,05 sekúndum

Finnur Thorlacius skrifar
Það þykir gott að fara kvartmíluna undir 10 sekúndum, en þegar 4.000 hestöfl eru undir húddinu er hægt að klára vegalengdina á svo litlum tíma sem 4,05 sekúndum.

Það er reyndar lítið eftir af upprunanlegum hlutum í þessum Chevrolet Corvette bíl. Small block vélin er horfin og 548 kúbiktommu “Outlaw” Hemi vél er komin í staðinn og við hana bætt tveimur risastórum 102 mm Precision forþjöppum og það skýrir að mestu út það ógnarafl sem vélin skilar.

Endahraði Corvettunnar í spyrnunni er 201 míla, eða 323 km/klst. Hér að ofan má sjá spyrnu þessa ofuröfluga bíls á kvartmílubraut.






×