Bílar

Porsche klár í titilvörnina í þolakstri

Finnur Thorlacius skrifar
Porsche 918 Hybrid er 900 hestafla orkusprengja.
Porsche 918 Hybrid er 900 hestafla orkusprengja.
Porsche hreppti heimsmeistaratitilinn í þolakstursmótaröðinni í fyrra með Porsche 919 Hybrid bílnum, en þetta var aðeins önnur þátttaka Porsce í keppninni eftir langt hlé. Mikil pressa er því á að Porsche endurtaki leikinn í ár.

Af því tilefni afhjúpaði Porsche nú á dögunum nýjan fulltrúa sinn í þolaksturskeppnum ársins, erfiðustu þolraunum sem ökumenn og bílasmiðir taka þátt í á hverju ári. Porsche kynnti þar til sögunnar þriðju kynslóðina af 919 Hybrid bílnum í Frakklandi á dögunum og miðað við þær tæknilegu breytingar sem gerðar hafa verið á bílnum er morgunljóst að ekkert verður slegið af hjá Porsche í ár.

Í fáum orðum má segja að helsta þróunin milli kynslóða felist öðru fremur í meira vélarafli, breytilegu straumlínulagi, sem hægt er að aðlaga loftmótstöðunni á mismunandi keppnisbrautum og svo í þyngdarminnkun sem náðst hefur fram í nokkrum bíl- og vélarhlutum.

Á frumsýningu nýja 919 Hybrid bílsins var haft eftir Fritz Enzinger hjá Porsche: “Þessi nýja 900 hestafla orkusprengja er klár í titilvörnina í þolaksturskeppnum ársins.“ 






×