Viðskipti innlent

Hanna Ingibjörg nýr ritstjóri Gestgjafans

Atli Ísleifsson skrifar
Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir.
Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir.
Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir hefur verið ráðin ritstjóri Gestgjafans frá 1. ágúst 2016.

Hanna Ingibjörg tekur við starfinu af Sigríði Björk Bragadóttur.

Í tilkynningu frá Birtingi segir að Hanna Ingibjörg hafi starfað sem blaðamaður á Gestgjafanum í mörg ár og þekki því mjög vel til starfa innan ritstjórnar blaðsins.

„Hún hefur brennandi áhuga á hvers kyns matargerð og matartengdri menningu.

Hanna Ingibjörg er með B.Ed. í grunnskólakennarafræðum frá HÍ. Auk starfa á Gestgafanum á undangengnum árum hefur hún unnið fyrir franska sendiráðið og einnig sem kennari í Réttarholtsskóla.

Hanna Ingibjörg er gift Kjartani Valdemarssyni, hljómlistarmanni, og eiga þau tvær dætur,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×