Viðskipti erlent

Hagvöxtur nær enginn í Japan

Sæunn Gísladóttir skrifar
Nikkei 225 vísitalan í Japan lækkaði í nótt um 0,3 prósent.
Nikkei 225 vísitalan í Japan lækkaði í nótt um 0,3 prósent. Vísir/Getty
Hagvöxtur jókst um einungis 0,2 prósent á öðrum ársfjórðungi í Japan, samkvæmt tölum sem birtust í morgun.

Erfiðleikar hafa verið til staðar í japanska efnahagslífinu í nokkur ár og lítið hefur gengið að auka vöxt í hagkerfinu sem og að draga úr verðlækkunum.

Styrking jensins undanfarin misseri hefur verið japönskum fyrirtækjum erfið. Gengi jensins hefur hækkað um átján prósent gagnvart Bandaríkjadal það sem af er ári. Þetta hefur reynst fyrirtækjum í útflutningi sérstaklega erfitt. Útflutningur drógst saman á fjórðungnum, sem og fjárfesting í fyrirtækjum.

Kreppa var í japanska efnahagslífinu árið 2014 og hefur vöxtur í landinu verið sveiflukenndur eftir það. Seðlabankinn í Japan reyndi að sporna gegn kreppu meðal annars með því að vera með neikvæða stýrivexti, en allt hefur þetta borið lítinn árangur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×