Viðskipti erlent

Bill Gates sífellt ríkari

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bill Gates er ríkasti maður heims.
Bill Gates er ríkasti maður heims. Vísir/AFP
Milljarðamæringurinn Bill Gates hefur aldrei verið ríkari. Eignir hans námu 90 milljörðum Bandaríkjadala á föstudaginn, samkvæmt samantekt Bloomberg. Það jafngildir því að hann eigi nærri 11 þúsund milljörðum íslenskra króna. Þá höfðu hlutabréf hans í Kanadíska lestarfélaginu (e. Canadian Nati­onal Railway Company) og Ecolab hækkað.

Þetta er í fyrsta skipti sem eignir Gates fara upp fyrir 90 milljarða dala markið, þótt hann hafi farið nálægt því fyrr á þessu ári. Tímaritið Fortune segir að Gates sé langríkasti maður í heimi. Hann eigi bæði lausafé og hlutabréf í fjölmörgum fyrirtækjum, auk Microsoft.

Fortune segir líka að eignir Gates hafi vaxið verulega á þessu ári. Í byrjun ársins hafi eignir hans numið 75 milljörðum dala, en þær hafi nú vaxið um 15 milljarða. Næstríkasti maðurinn, hinn spænski Amancio Ortega, á 76 milljarða dala.

Gates hefur gefið stóran hluta eigna sinna til góðgerðarmála í gegnum Stofnun Bills og Melindu Gates. Hann hefur einnig stutt ýmis önnur góðgerðarverkefni eins og baráttuna gegn malaríu í Afríku.

Þá hafa Bill og Melinda eiginkona hans heitið því að enn fleiri eignir renni til góðgerðarmála að þeim látnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×