Viðskipti erlent

Ericsson í Svíþjóð segir upp þrjú þúsund manns

Atli Ísleifsson skrifar
Alls starfa 16 þúsund manns hjá Ericsson í Svíþjóð.
Alls starfa 16 þúsund manns hjá Ericsson í Svíþjóð. Vísir/AFP
Sænska fjarskiptafyrirtækið Ericsson hefur tilkynnt að þrjú þúsund starfsmönnum hafi verið sagt upp störfum. Í tilkynningu frá félaginu er ný sparnaðaráætlun kynnt og segir að flestum þeim sem verður sagt upp, starfi á starfstöðvum félagsins í Kumla og Borås.

Alls starfa um 16 þúsund manns hjá fyrirtækinu í Svíþjóð og liggur því fyrir að tæplega fimmti hver starfsmaður hefur fengið uppsagnarbréf í dag.

Í yfirlýsingunni segir að Ericsson muni leggja aukinn kraft í rannsóknir og þróun þar sem starfstöðvar Ericsson í Svíþjóð munu skipa mikilvægan sess.

Í frétt Aftonbladet segir að þúsund þeirra sem verður sagt upp starfi innan framleiðslu, 800 innan rannsóknar- og þróunardeildar og 1.200 innan annarra deilda. Til viðbótar hefur 900 manns innan þjónustudeildar fyrirtækisins verið sagt upp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×