Handbolti

KA dæmdur 10-0 sigur á Akureyri

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jón Heiðar Sigurðsson skýtur að marki Akureyrar í leiknum.
Jón Heiðar Sigurðsson skýtur að marki Akureyrar í leiknum. mynd/þórir tryggvason
HSÍ hefur úrskurðað að leikur KA og Akureyrar í Grill 66-deildinni á dögunum verði dæmdur 10-0 fyrir KA þar sem Akureyri tefldi fram ólöglegum leikmanni í leiknum.

Arnar Jón Agnarsson var meðal leikmanna Akureyrar í leiknum en hann var ekki kominn með félagaskipti eða leikheimild þegar leikurinn fór fram.

Leiknum lauk 20-20 fyrir framan troðfullt íþróttahús KA en Akureyri tapar stiginu sem færist yfir til KA-manna.

KA er þar af komið með 8 stig er á toppnum ásamt HK. Akureyri er með 6 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×