Innlent

Markvisst unnið að fjölgun menntaðra á leikskólum

Sveinn Arnarsson skrifar
Ágúst Bjarni Garðarsson stjórnmálafræðingur.
Ágúst Bjarni Garðarsson stjórnmálafræðingur. Fréttablaðið/Vilhelm
Ágúst Bjarni Garðarsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, segir það verkefni næstu ára að auka menntun starfsmanna á leikskólum bæjarins og að um landlægt vandamál sé að ræða. Hann gagnrýnir orðanotkun bæjarfulltrúa Miðflokksins.

Fréttablaðið greindi frá því í gær að 29 prósent starfsmanna leikskóla Hafnarfjarðar væru með menntun sem leikskólakennarar. Ágúst Bjarni segir að unnið sé að því innan kerfisins að fjölga menntuðum kennurum.

„Tölurnar eru auðvitað ekki eins og við vildum, en hér er um að ræða landlægt vandamál sem við, líkt og önnur sveitarfélög, erum að kljást við. Þetta tekur tíma og það þurfa fleiri að klára námið og við svo að búa til aðlaðandi starfsumhverfi og er vinna við það í gangi á báðum skólastigunum,“ segir Ágúst Bjarni. „Yfirvinnupotti hefur meðal annars verið komið á til að mæta faglegum verkefnum og unnar hafa verið rýmis­áætlanir.“

Sigurður Þ. Ragnarsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins, sagði það blekkingarleik að hægt sé að halda uppi faglegri vinnu með svo lágt hlutfall menntaðra kennara. Ágúst Bjarni er ósammála þeim fullyrðingum. „Við vonumst til að gera enn betur og ná að laða til okkar faglegt og gott starfsfólk. En ég get engan veginn tekið undir orðanotkun bæjarfulltrúa Miðflokksins um að leikskólakerfið sé að grotna að innan. Þvert á móti, en við þurfum að gera betur. Það er verkefni næstu mánaða og ára.“ – sa


Tengdar fréttir

Menntunarleysi starfsmanna á leikskólum veldur áhyggjum

Fáir starfandi einstaklingar á leikskólum Hafnarfjarðar eru með menntun sem slíkir eða 29 prósent. Oddviti Miðflokksins segir stöðuna grafalvarlega og það blekkingu að hægt sé að halda uppi öflugu skólastarfi með stefnu núverandi meirihluta. Formaður bæjarráðs vildi ekki ræða málið þegar eftir því var leitað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×