Innlent

Mesti hlutfallslegi samdrátturinn í gistinóttum í apríl og maí var á höfuðborgarsvæðinu

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Kristófer Oliversson er formaður fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu.
Kristófer Oliversson er formaður fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu. EINAR ÁRNASON

Þótt Íslendingar séu duglegir að ferðast innanlands í sumar er ástæða til að hafa áhyggjur af stöðunni í vetur að mati formanns fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu. Mesti hlutfallslegi samdrátturinn í gistinóttum í apríl og maí var á höfuðborgarsvæðnu sé litið til sama tímabils árið áður.

Þetta kemur fram í nýrri hagsjá Landsbankans en samdráttur í gistinóttum í apríl og maí nam 96,3% á svæðinu. Utan höfuðborgarsvæðisins var samdrátturinn mestur á Suðurnesjum en minnstur á Vesturlandi og Vestfjörðum.

Ljóst er að Íslendingar hafa verið duglegir að ferðast innanlands í sumar en kortavelta Íslendinga tengd verslun og þjónustu innanlands jókst um 17% á milli júní í fyrra og júní í ár miðað við fast verðlag - sem er veruleg aukning og viðsnúningur frá þróun síðustu mánaða samkvæmt hagsjánni.

Formaður félags fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu segir að þótt Íslendingar séu duglegir að ferðast innanlands sé ástæða til að hafa áhyggjur af stöðunni í vetur.

„Um leið og Íslendingar hætta að ferðast um miðjan ágúst þá stefnir í að það verði mjög lítið að gera því miður hvort sem það er úti á landi eða í Reykjavík,“ sagði Kristófer Oliversson, formaður fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu.

Því þurfi stjórnvöld að grípa enn frekar inn í.

„Ég held að menn þurfi að horfa á það að allir sem eru með stórar og miklar fasteignir t.d. og með frest á lánum og öðru slíku. Það þarf að skoða þau mál mjög vel nú á næstunni, hvernig eigum við að bregðast við því. Það hlaðast upp vextir en engar tekjur koma inn,“ sagði Kristófer.

Íslendingar hafa í gegnum tíðina verið gjarnir á að elta góða veðrið á ferðalögum um landið en það gæti reynst erfitt um helgina þar sem slæmt veður er til útivistar á landinu öllu næstu daga að sögn Haraldar Eiríkssonar veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Göngufólk og fólk í tjöldum er sérstaklega varað við aðstæðum á miðhálendinu en varasamt er að tjalda þar vegna gulrar viðvörunar. Skársta veðrið um helgina verður á Suðurlandi en þar ætti að hanga þurrt.


Tengdar fréttir

Lægðin stjórnar veðrinu næstu daga

Lægðin sem nálgast frá Grænlandshafi mun stjórna veðrinu næstu daga og hreyfist norðaustur yfir landið á morgun og hinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×