Innlent

Segir al­manna­hags­munum Hafn­firðinga fórnað

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Sigurður Þ. Ragnarsson, bæjarstjórnarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði.
Sigurður Þ. Ragnarsson, bæjarstjórnarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði. Vísir/Vilhelm

Sigurður Þ. Ragnarsson, fulltrúi Miðflokksins í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, segir almannahagsmunum Hafnfirðinga hafa verið fórnað þegar bæjarráðið samþykkti í morgun tillögu meirihluta bæjarstjórnarinnar um að taka tilboði félags lífeyrissjóða um kaup á 15,42 prósenta hlut bæjarins í HS Veitum.

„Þetta er svartur dagur í dag þegar meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ákváðu að selja hlut Hafnarfjarðar í orkuveitufyrirtækinu HS-Veitum,“ skrifar Sigurður í færslu sem hann birti á Facebook.

Hann bendir á að hlutur Hafnarfjarðarbæjar í HS Veitum hafi frá árinu 2013 hækkað um 2 milljarða.

Hafnarfjarðarbær hefur samþykkt að selja 15,42 prósenta hlut sinn í HS Veitum. mynd/ stefán

Tilboðið sem samþykkt var hljóðar upp á 3,5 milljarða króna en endanleg ákvörðun um söluna verður tekin á fundi bæjarstjórnar í næstu viku.

„Staða stærri sveitarfélaga landsins er skelfileg. Úr því verður að bæta með úrræðum sem ríkisvaldið getur ekki hundsað því 90% verkefna sveitarfélaga er lögboðin þjónusta. Eftir þessum aðgerðum vill meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ekki bíða heldur drífa í að selja gullgæsina sem margfaldað hefur verðgildi sitt,“ skrifar Sigurður.

Meirihluti bæjarstjórnar ákvað í vor að hefja undirbúning að sölu hlutarins í HS Veitum sem vakið hefur mikla gagnrýni minnihlutans. Þá hefur hópur Hafnfirðinga staðið fyrir því undanfarna mánuði að safna undirskriftum og krefja bæjarstjórnina að setja, þá fyrirhugaða sölu, í íbúakosningu en bar það ekki árangur sem erfiði.

Meirihlutinn hefur í umræðu um söluna bent til slæmrar fjárhagsstöðu bæjarins vegna kórónuveirufaraldursins. Segir meðal annars í fundargerð bæjarráðs frá því í morgun að salan dragi verulega úr lánsfjárþörf bæjarins og þar með afborgunum og vaxtagreiðslum til framtíðar.

„Framundan eru blómatímar hjá HS-veitum s.s. rafvæðing hafnanna, fiskeldi og fleira sem gera mun verðmæti hlutabréfa HS-veitna enn meira. Fram hjá þessum hagsmunum vill meirihlutinn í Hafnarfirði horfa,“ skrifar Sigurður.

„Þetta mun á endanum hækka verð til neytenda þótt þröngur rammi sé til þess nú en hingað til hefur það ekki þvælst fyrir löggjafarvaldinu að breyta lögum, enda lög mannanna verk. Skammtímasjónarmið ráða hér því algjörlega ferðinni hjá meirihlutanum.“


Tengdar fréttir

Ég myndi hlæja ef þetta væri ekki svona sorg­legt

Nýlega birtust fréttir af áhuga Samherja á fiskeldi í Helguvík, verkefni sem mun auka gríðarlega framtíðartekjumöguleika HS Veitna. Rafvæðing hafna og skipaflotans er einnig risaverkefni sem mun auka framtíðartekjumöguleika HS Veitna.

Segir skamm­vinnan gróða fólginn í sölu á hlut Hafnar­fjarðar í HS Veitum

Ábyrgðarmaður undirskriftasöfnunar um að knýja fram íbúakosningu í Hafnarfjarðarbæ vegna fyrirhugaðrar sölu á hlut bæjarins í HS Veitum segir það ekki vekja traust að meirihluti bæjarstjórnarinnar hafi hafið undirbúning á sölunni áður en samþykkt var í bæjarráði að fara í söluna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×