Orkumál

Fréttamynd

Hörður hættir sem for­stjóri Lands­virkjunar

Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar. Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, mun taka tímabundið við starfi forstjóra frá 1. nóvember, þar til nýr forstjóri verður ráðinn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Verklokafælni stjórn­valda

Íslensk stjórnvöld eiga stundum auðveldara með að greina vandamál en að leysa þau. Það er eitt að taka sér tíma til að vanda ákvarðanir.

Skoðun
Fréttamynd

Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnar­ráðið

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar hefur óvænt boðað til starfsmannafundar eftir hádegið í dag. Samkvæmt heimildum Vísis hefur Hörður velt stöðu sinni sem forstjóri fyrir sér undanfarið og mun það vera tilefni fundarins. Vísir hefur ekki fengið staðfest hvort Hörður ætli að láta af störfum hjá félaginu en hann mætti á fund í stjórnarráðinu um eittleytið í dag.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ein vél Fljóts­dals­stöðvar úti

Bilun hefur komið upp í háspennuleiðara við vélaspenni í Fljótsdalsstöð. Talið er að viðgerð taki sex til átta vikur. Aðrar vélar stöðvarinnar verða prófaðar næstu vikur til að tryggja að samskonar bilun komi ekki upp.

Innlent
Fréttamynd

Borgarverk með lægsta boð í Þjórs­ár­brú og Búðafossveg

Borgarverk ehf. í Borgarnesi átti lægsta boð í smíði nýrrar Þjórsárbrúar á móts við þorpið Árnes og lagningu Búðafossvegar. Tilboð Borgarverks hljóðar upp á liðlega 2,5 milljarða króna og var 87% af kostnaðaráætlun, sem var upp á rétt rúma 2,9 milljarða króna.

Innlent
Fréttamynd

Utan­ríkis­ráð­herra Úkraínu lýsir yfir gríðar­legu þakk­læti

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fundaði með utanríkisráðherra Úkraínu í dag en sá síðarnefndi segist hafa lýst þakklæti á fundi sem hann átti með utanríkismálanefnd Alþingis. Þar hafi verið lögð áhersla á að styrkja samstarf ríkjanna. Einnig hafi verið rætt um þá alvarlegu stöðu sem skapast hefur á Svartahafi þar sem Rússar koma í veg fyrir kornútflutning Úkraínu með árásum á hafnir og flutningaskip.

Erlent
Fréttamynd

Blendnar til­finningar á Degi ís­lenskrar náttúru

Haldið er upp á Dag íslenskrar náttúru í dag, sem framkvæmdastjóri Landverndar segir að sé jafnan fagnaðarefni. Í ár séu tilfinningar hins vegar blendnar vegna svikinna loforða stjórnmálamanna í leyfisveitingum fiskeldisfyrirtækja, uppbyggingu vindorkuvera og umdeildra orða umhverfisráðherra, sem sagðist í ræðu í gær telja það „trömpískt“ að sjá ekki fegurð í vindmyllunum.

Innlent
Fréttamynd

Laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptum

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku og loftslagsráðherra segir að laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptabyltingunni. Hann kveðst hæstánægður með ferlið og segir engan afslátt hafa verið gefinn af umhverfiskröfum eða samráði við nærsamfélagið.

Innlent
Fréttamynd

Undir­búa risasölu á helmings­hlut í HS Orku fyrir tugi milljarða

Breskur innviðasjóður hefur ákveðið að hefja undirbúning að mögulegri sölu á öllum helmingshlut sínum í HS Orku, þriðja stærsta raforkuframleiðanda Íslands, en verði af henni er ljóst að um yrði að ræða risastór viðskipti upp á tugi milljarða. Íslenskir lífeyrissjóðir eiga eftirstandandi hlut í orkufyrirtækinu og þurfa að setja sig í stellingar hvort þeir muni vilja nýta sér forkaupsrétt sinn.

Innherji
Fréttamynd

Gefa kola- og gasorku­verum lausan tauminn

Bandaríkjastjórn ætlar að afnema reglur um losun kola- og gasorkuvera á gróðurhúsalofttegundum. Losun bandarískra orkuvera er ein allra stærsta einstaka uppspretta gróðurhúsalofttegunda á jörðinni.

Erlent
Fréttamynd

Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi

Allir sem tóku eldsneyti fyrir miðnætti í gær borguðu lægra verð en þeir sem biðu með að dæla þar til í dag eftir að tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti féll úr gildi. Um tíma leit út eins og Olís hefði þjófstartað í hækkununum í Mosfellsbæ en um var að ræða bilun í kerfi og allir greiddu rétt verð. Framkvæmdastjórinn gagnrýnir hve stuttan tíma olíufélögin fá til að bregðast við meiriháttar breytingum stjórnvalda. 

Neytendur
Fréttamynd

Bensínlítrinn hefur hækkað á ný

Bensín hefur almennt hækkað um 23 til 24 krónur lítrinn frá því í gær á dælu en á miðnætti rann út tímabundin heimild til að lækka virðisauka á bensín og dísil. Lítrinn af dísil hefur hækkað um 27 krónur. 

Neytendur
Fréttamynd

Hyggst kanna hug í­búa til á­forma í Finnafirði

Sveitarstjórn Langanesbyggðar hefur ákveðið kanna hug íbúa til áforma um gerð vindmyllugarða í sveitarfélaginu og iðnaðarsvæðis við Finnafjörð í tengslum við gerð stórskipahafnar. Málið þykir heitt meðal íbúa en oddvitinn segir niðurstöðurnar verða hafðar til hliðsjónar við framhald málsins.

Innlent
Fréttamynd

Ari orðinn stjórnar­for­maður

Ari Edwald, borgarfulltrúi Miðflokksins, hefur verið kjörinn stjórnarformaður Orkuveitunnar. Tillaga borgarstjóra þess efnis vakti talsverða athygli á sínum tíma, enda er Ari ekki í meirihluta borgarstjórnar en stjórnarformenn Orkuveitunnar eru nánast undantekningalaust á hans snærum.

Innlent
Fréttamynd

Tíu af tuttugu efstu em­bættis­mönnunum hjá orku­fyrir­tæki

Tryggvi Þór Haraldsson, fyrrverandi forstjóri Rarik til tveggja áratuga, trónir á toppi listans yfir launahæstu embættismenn, forstjóra og starfsmenn hins opinbera samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Samkvæmt blaðinu var hann með um 5,8 milljónir í laun á mánuði í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja

Bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar segir að það komi í ljós eftir hálfan mánuð hvort hægt verði að nota nýja vatnslögn til Eyja sem nú er verið að leggja. Lögnin skemmdist við útlagningu síðustu helgi. Vestmanneyjarbær hafi nú þegar greitt yfir milljarð vegna verkefnisins en samningar við ríkið um hver beri heildarkostnaðinn standi yfir.

Innlent
Fréttamynd

Fengu virkjunar­leyfi í Strandabyggð

Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Orkubúi Vestfjarða virkjunarleyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun í Selárdal í Strandabyggð. Með henni er tryggð afhending raforku fyrir Hólmavík.

Innlent