Innlent

Valkvæðum skurðagerðum frestað

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Alma Möller er landlæknir.
Alma Möller er landlæknir. Vísir/Vilhelm

Heilbrigðisráðherra hefur staðfest fyrirmæli landlæknis um frestun valkvæðra skurðaðgerða og annarra ífarandi aðgerða. Frestunin tekur gildi frá og með morgundeginum á höfuðborgarsvæðinu en skipulagðar aðgerðir utan höfuðborgarsvæðisins eru heimilar dagana 27. og 28. október.

Frestunin gildir til og með 15. nóvember næstkomandi. Minni aðgerðir sem hægt er að framkvæmda í staðdeyfingu, það er á vakandi sjúklingi, verða áfram heimilar og einnig speglanir í greiningaskyni með þeim takmörkunum þó að ekki séu framkvæmdar ífarandi aðgerðir.

Alma Möller landlæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna í gær að forstjóri Landspítalans hefði sendi erindi til landlæknis í gær þar sem hann óskaði eftir því að þetta væri gert.

„Það er til að minnka hugsanlegt álag á spítalann sem getur hlotist af aðgerðum, sagði Alma á fundinum í gær. Um neyðarúrræði væri að ræða.

Fyrirmæli landlæknis eru eftirfarandi:

Á meðan faraldur COVID-19 geisar er brýnt að endurskipuleggja heilbrigðisþjónustu þannig að unnt sé að sinna nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu jafnframt því að sinna sjúklingum með COVID-19.

Í ljósi alvarlegrar stöðu sem upp er komin á Landspítalanum er forgangsröðun nú nauðsynleg. Einn liður í þeirri forgangsröðun er að takmarka eins og kostur er mögulegar sjúkrahúsinnlagnir á næstu vikum. Landlæknir hefur því ákveðið, með vísan til 1. mgr. 5. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, að beina þeim fyrirmælum til viðkomandi heilbrigðisstofnana og heilbrigðisstarfsmanna að frá og með þriðjudeginum 27. október til og með 15. nóvember nk. skuli öllum svokölluðum valkvæðum skurðaðgerðum og öðrum ífarandi aðgerðum frestað, hvort sem þær eru framkvæmdar innan eða utan spítala, af opinberum aðila eða einkaaðila. Þrátt fyrir þetta eru þegar skipulagðar aðgerðir utan höfuðborgarsvæðisins heimilar 27. og 28. október nk.

Þetta er gert í ljósi þess að slíkar aðgerðir geta kallað á komur á bráðamóttöku og/eða sjúkrahúsinnlögn sem getur valdið enn frekara álagi á sjúkrahús en nú þegar er. Minni aðgerðir sem hægt er að framkvæma í staðdeyfingu, þ.e. á vakandi sjúklingi, eru leyfðar. Speglanir í greiningaskyni eru leyfðar en með þeim takmörkunum að ekki séu framkvæmdar ífarandi aðgerðir eins og sepataka.

Landlæknir beinir þeim fyrirmælum til skurðlækna og annarra lækna sem ákvörðun þessi tekur til, að þeir upplýsi skjólstæðinga sína og geri aðrar viðeigandi ráðstafanir eins fljótt og verða má. Þess skal þó gætt að brýnar skurðaðgerðir eða greiningarrannsóknir sem ekki þola bið umfram átta vikur verði framkvæmdar. Ljóst er að upp kunna að koma vafatilfelli en landlæknir treystir á faglegt og yfirvegað mat hlutaðeigandi sérfræðilæknis í hverju tilviki fyrir sig. Tilkynnt verður með fyrirvara hvenær hægt verður að hefja þessa starfsemi á ný.


Tengdar fréttir

Búa sig undir tvær erfiðar vikur

79 smit hafa nú verið rakin til hópsýkingar Covid-19 á Landakoti. Starfsmenn Landspítala búa sig nú undir erfiðar tvær vikur hið minnsta, að sögn forstjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×