Innlent

Djúp lægð nálgast landið

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Gular viðvaranir eru í gildi víða á landinu á morgun.
Gular viðvaranir eru í gildi víða á landinu á morgun. Skjáskot/veðurstofan

Búast má við suðvestanátt og kólnandi veðri í dag, víða verður strekkingsvindur og éljagangur þegar kemur fram á daginn en léttir til austanlands í kvöld. Á morgun nálgast svo djúp lægð úr suðvestri og það gengur í sunnan- og suðaustan hvassviðri eða storm, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Þessu fylgir slydda eða snjókoma og síðar talsverð rigning sunnan- og vestantil á landinu með tilheyrandi leysingum. Hiti verður eitt til sex stig síðdegis.

Gular viðvaranir eru í gildi víða á landinu á morgun, sunnudag. Þær taka fyrst gildi á Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði og Miðhálendinu um og laust eftir hádegi. Síðdegis bætast viðvaranir við á Ströndum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra. Búast má við stormi eða hvassviðri allt að 23 m/s og snörpum vindhviðum við fjöll.

„Hækkandi hitastig, aukið afrennsli og vatnavextir í ám og lækjum. Mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum ti lað forðast vatsntjoń vegna rigningar og leysingavatns. Fólk er hvatt til að sýna aðgát.“ 

Þá er fólki víða ráðið frá ferðalögum á meðan viðvaranir eru í gildi en þær ganga flestar yfir annað kvöld.

Á mánudag er útlit fyrir nokkuð hvassa suðvestanátt. Skúrir eða él, en þurrt á Norðaustur- og Austurlandi.

Á vef Vegagerðarinnar segir að vetrarfærð sé í flestum landshlutum. „Unnið er að mokstri víðast hvar um landið. Allvíða vantar vegstikur eða þær eru á kafi í snjó.“ Hægt er að fylgjast með færð á vegum í rauntíma á vef Vegagerðarinnar.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á sunnudag: Gengur í sunnan hvassviðri eða storm, fyrst SV-lands. Snjókoma eða slydda, en síðar hláka um allt land með talsverðri rigningu S- og V-til. Úrkomulítið á NA-verðu landinu. Hiti 1 til 6 stig síðdegis.

Á mánudag: Suðvestanátt með hvössum skúrum eða éljum, en þurrt á NA- og A-landi. Hiti 0 til 5 stig.

Á þriðjudag og miðvikudag: Suðvestanátt og él, en bjartviðri á N- og A-landi. Víða vægt frost.

Á fimmtudag og föstudag: Vestlæg átt og dálítil él, en léttir víða til á föstudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×