Innlent

Mörg fyrirtæki í erfiðleikum vegna sóttkvíar starfsmanna

Heimir Már Pétursson skrifar
Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir hægt að treysta fyrirtækjum varðandi vinnusóttkví enda hafi þau mörg hver gripið til eigin sóttvarnaráðstafana. Það sé ekki fyrirtækjum í haga að margir starfsmenn smitist.
Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir hægt að treysta fyrirtækjum varðandi vinnusóttkví enda hafi þau mörg hver gripið til eigin sóttvarnaráðstafana. Það sé ekki fyrirtækjum í haga að margir starfsmenn smitist. Stöð 2/Egill

Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir yfirstandandi bylgju faraldursins koma mun ver niður á starfsemi fyrirtækja vegna mikils fjölda smitaðra. Fyrirtækin hafi sýnt ábyrgð og gripið til sóttvarnaráðstafana og ætti að vera treystandi til að hafa einkennalaust fólk í vinnusóttkví.

Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir yfirstandandi byglju kórónuveirufaraldursins hafa komið mun ver við starfsemi fyrirtækja en fyrri bylgjur vegna þess hversu margir væru að smitast þessar vikurnar. Þá væru gríðarlega mörg fyrirtæki að missa fólk í sóttkví.

„Og reksturinn víða á tæpasta vaði hvað mönnunina varðar,“ segir Ólafur. Félag atvinnurekenda hafi því kallað eftir því að reglur um einangrun og sóttkví verði endurskoðaðar í ljósi tveggja þátta sem væru öðru vísi en fyrr í faraldrinum.

„Annars vegar virðist þetta ómíkron afbrigði vera mun vægara og í öðru lagi er bólusetningarstaðan allt önnur.“

Fólk með lítil eða engin einkenni væri skikkað í tíu daga sóttkví nánast án undantekninga því erfitt væri vegna mikils álags fyrir fólk að ná sambandi við göngudeildina. Þau fyrirtæki sem ekki geti sent fólk í heimavinnu væru í mestum vanda. Dæmi væru um að fyrirtæki hafi ekki komið vörum til viðskiptavina vegna sóttkvíar starfsmanna.

„Í framleiðslu, með stór vöruhús, öflug dreifingarkerfi og svo framvegis,“ segir Ólafur.

Það mætti treysta fyrirtækjunum sjálfum til að vakta stöðuna því þau hafi mörg hver sjálf gripið til mjög öflugra sóttvarnaráðstafana með uppskiptingu vakta og hólfaskiptingum starfsmana. Það mætti því víkka svo kallaða vinnusóttkví eins og nefnt hafi verið af talsmönnum Almannavarna.

„Það auðvitað átta sig allir á afleiðingunum fyrir sinn rekstur ef það kemur upp útbreitt smit. Eða ef mjög margir hafa verið í snertingu við einhvern smitaðan og þurfa þess vegna að fara í sóttkví. Það er óhætt að segja að menn hafi verið ábyrgir og hugmyndaríkir í að útfæra kerfi sem lágmarka áhrifin á fyrirtækin. Þegar þetta er orðið svona gríðarlega útbreitt verður það æ erfiðara,“ segir Ólafur Stephensen.


Tengdar fréttir

838 greindust innan­lands

838 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Aldrei hafa svo margir greinst með kórónuveiruna innanlands á einum sólarhring frá upphafi faraldursins. Fyrra met var 836 smit innanlands þann 27. desember.

Fækkar um tvo á Land­spítala vegna Co­vid-19

Nítján sjúklingar liggja nú inni á Landspítala vegna Covid-19, en þeir voru 21 í gær. Líkt og í gær eru sex sjúklingar á gjörgæslu og fimm þeirra í öndunarvél.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×