Efnahagsmál

Fréttamynd

Vextir hafi sannar­lega lækkað en fram­boðið sé breytt

Bankastjóri Landsbankans segir vexti bankans sannarlega hafa lækkað samhliða stýrvaxtalækkunum undanfarinna mánaða. Framboð bankans sé aftur á móti gjörbreytt eftir Vaxtadómana svokölluðu og því erfitt að bera saman vexti nýrra lána fyrir og eftir dómana. Tölur sem formaður Starfsgreinasambandsins vísaði til í gær séu þannig réttar en vart samanburðarhæfar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tekur ekki undir full­yrðingar um plat

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir ákvörðun Seðlabankans um hækkun stýrivaxta að einhverju leyti viðbúna en hún sé mikil vonbrigði. Hann segir eðlilegt að fólk sé pirrað vegna málsins en hafnar fullyrðingum verkalýðsleiðtoga um að ríkisstjórnin plati almenning með fullyrðingum um vaxtalækkanir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verka­lýðnum hótað

Aðalhagfræðingur Arion banka segir helstu tíðindin af vaxtahækkunarákvörðun peningastefnunefndar í morgun, um 25 punkta hækkun, vera klofningur í nefndinni. Þrír nefndarmenn vildu hækka um 25 punkta en tveir vildu stíga skrefinu lengra og hækka um 50 punkta. Þá hafi seðlabankastjóri verið skýr með það að verði kjarasamningum slitið í sumar verði stýrivextir hækkaðir frekar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Svíar lækka matarskatt – Norð­menn ræða – en hvað með Ís­land?

Verðbólgan leikur fleiri grátt en íslenska neytendur um þessar mundir. Í sumum nágrannalanda okkar hefur þegar verið gripið til aðgerða eða umræða um þær í gangi. Í Svíþjóð hefur verið ákveðið að lækka virðisaukaskatt á matvörur úr 12% í 6% tímabundið, frá 1. apríl og út árið 2027. Samhliða hafa eldsneytisgjöld verið lækkuð, sem styrkir kaupmátt neytenda og samkeppnisstöðu landsins. Svíar reikna með að áhrifin komi fljótt fram í verslun þegar neytendur í nágrannalöndum beina innkaupum sínum til landsins.

Skoðun
Fréttamynd

„Krist­rún, það er ljótt að plata“

Formaður Starfsgreinasambandsins gefur lítið fyrir það að ríkisstjórnin berji sér á brjóst vegna stýrivaxtalækkana sem orðið hafa í stjórnartíð hennar. Vextir viðskiptabankanna séu þrátt fyrir þær enn hærri en þeir voru við gerð stöðugleikasamninganna svokölluðu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stjórn­endur svart­sýnni en þeir hafa verið frá 2020

Fleiri stjórnendur iðnfyrirtækja telja að aðstæður í efnahagslífinu séu slæmar fyrir þeirra fyrirtæki en þeir sem telja aðstæðurnar góðar. Munurinn er töluverður og hefur orðið alger viðsnúningur þar á frá því fyrir ári síðan. Stjórnendur vænta samdráttar í fjárfestingum og þykja svör þeirra í nýrri könnun benda til stöðnunar í fjárfestingum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Seðla­bankinn herðir tóninn veru­lega og hækkar vexti í fyrsta sinn frá 2023

Þrátt fyrir merki um kólnun í hagkerfinu hefur peningastefnunefnd Seðlabankans ákveðið að hækka meginvexti um 25 punkta, einkum vegna hækkunar á verðbólguvæntingum að undanförnu, og sendir í senn skýr og gjörbreytt skilaboð um að vera reiðubúin að herða taumhaldið enn frekar. Tveir nefndarmenn vildu ganga enn lengra og hækka vextina um 50 punkta.

Innherji
Fréttamynd

Hækka stýrivexti

Peningastefnunefnd hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 25 punkta og þeir fara því úr 7,25 prósentum í 7,5. Vextir höfðu fyrir það staðið í stað í 7,25 prósentunum síðan í nóvember síðastliðnum. Síðan þá hefur verðbólga aukist í 5,2 prósent og óvissa í alþjóðamálum einnig aukist. Því höfðu flestir greiningaraðilar spáð hækkun vaxta. Tveir af fimm nefndarmönnum vildu hækka vexti enn meira.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Af­greiðslu frestað um viku

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur frestað um viku að taka fyrir byggingaleyfisumsókn á Grensásvegi 46 vegna kaffistofu sem Samhjálp hyggst reka í húsinu. Til stóð að taka málið fyrir á fundi ráðsins í dag en af því verður ekki. 

Innlent
Fréttamynd

Spá ó­breyttum stýrivöxtum

Arion banki spáir því að stýrivextir verði óbreyttir eftir vaxtaákvörðunarfund peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands á morgun. Hagkerfið sé í talsverðri kólnun sem sjáist í samdrætti í nýjustu kortaveltutölum, auknu atvinnuleysi og verri atvinnuhorfum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Telja bensín­lítrann tuttugu krónum of dýran

Eldsneytisverð gæti verið allt að tuttugu krónum lægra en það er er ef olíufélögin færðu álagningu sína nær langtímameðaltali. Greining stéttarfélagsins Visku bendir til þess að olíufélögin séu fjórfalt líklegri til þess að skila hækkunum til neytenda en lækkunum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Vonandi verður ein vaxta­hækkun nóg“

Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir betra fyrir Seðlabankann að bregðast við núna en að þurfa að grípa seinna til harkalegri ráðstafana. Verðbólga hefur þróast með allt öðrum hætti en Seðlabankinn og greiningaraðilar gerðu sér vonir um og stýrivaxtahækkun er nú spáð í næstu viku. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

ESB-umræðan leysir ekki efna­hags­vandann

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur sett aðildarviðræður við Evrópusambandið á dagskrá, þvert á það sem hún lofaði fyrir síðustu kosningar. Nú hertekur sú umræða allt, en mjög heppilega fyrir ríkisstjórnina á sama tíma og staða efnahagsmála hér á landi er erfið. Ríkisstjórninni gengur ekkert í baráttunni við vexti og verðbólgu út af eigin ákvörðunum og atvinnuleysi þýtur upp.

Skoðun
Fréttamynd

Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið

Síðustu sex árin hefur íslenska krónan oftar en ekki sveiflast minna en ýmsir aðrir gjaldmiðlar, þar á meðal bandarískur dollar, Evran og breska pundið. Íslenska krónan hefur því ekki verið stór áhrifavaldur í því verðbólguástandi sem Íslendingar fást við í dag heldur sinnt sínu hlutverki vel sem fljótandi gjaldmiðill sem mýkir hagsveiflur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nefndin „föst í eitruðum kok­teil“ og þarf að láta glitta í mögu­lega vaxta­hækkun

Þróunin frá síðustu vaxtaákvörðun hefur verið einstaklega óhagstæð en peningastefnunefnd er núna „föst í eitruðum kokteil“ þar sem fer saman hækkandi verðbólga, aukið atvinnuleysi, kólnandi hagkerfi og verðbólguvæntingar rokið upp. Ef ekki á illa að fara, að mati greinenda Acro verðbréfa, þá þarf nefndin núna að „standa í lappirnar“ með mun hvassari tóni í yfirlýsingu sinni en áður og gefa út skýr skilaboð um að hún sé reiðubúin að hækka vexti.

Innherji
Fréttamynd

Brýnt að „varna“ því að út­flutnings­greinar glími við of miklar kostnaðar­hækkanir

Núna er þörf á „meiri varfærni og festu“ við stjórn ríkisfjármála samhliða því að hrint er í framkvæmd „metnaðarfullum“ efnahagsumbótum, að því er segir í sérstöku minnisblaði fjármála- og efnahagsráðherra, eigi að takast að rjúfa þá „stöðnun lífskjara“ sem er sögð hafa varað í nærri áratug. Þá er sagt brýnt að koma í veg fyrir að kostnaðarhækkanir í útflutningsgreinum séu umfram það sem þekkist í nágrannaríkjum, einkum við núverandi efnahagsaðstæður.

Innherji
Fréttamynd

Hag(ó)stjórnin

Annan mánuðinn í röð mælist verðbólgan 5,2%, umfram spár og væntingar helstu greinenda. Í síðasta mánuði kenndi forsætisráðherra einskiptisliðum og fyrirtækjum út í bæ um verðbólgumælinguna, og sagði ekkert tilefni til að breyta um kúrs, planið margumtalaða stæði óhaggað.

Skoðun
Fréttamynd

„Það er ein­hvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“

Það eru gríðarleg vonbrigði að verðbólga mælist ekki á niðurleið og þrálát verðbólga til lengri tíma er óviðunandi að sögn fjármála- og efnahagsráðherra. Honum hugnast þó ekki hugmyndir um að breyta opinberum gjöldum í því skyni að lækka verðbólgu. Næsta vaxtaákvörðun Seðlabankans verður um miðjan mars, og nýjasta verðbólgumæling þykir ekki til marks um að líklegt sé að meginvextir bankans verði lækkaðir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Mikið í húfi ef ekki dregur úr verð­bólgu og vaxtalækkun ekki í sjón­máli

Það eru mikil vonbrigði að verðbólga hafi ekki lækkað í febrúar og viðbúið að stýrivextir haldist óbreyttir við næstu vaxtaákvörðun að sögn hagfræðings. Ekki sé ólíklegt að möguleg vaxtahækkun komi til umræðu fyrir næstu vaxtaákvörðun, og ef ekki takist að ná verðbólgu nær markmiði gæti virkjun forsenduákvæðis kjarasamninga verið í húfi í haust. Þá sé áhyggjuefni að verðbólguþrýstingur virðist vera á uppleið.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Arion verð­lagður á „spott­prís“ þrátt fyrir sam­bæri­lega arð­semi og nor­rænir bankar

Þrátt fyrir að skila sambærilegri arðsemi og aðrir helstu bankar á hinum Norðurlöndunum þá er Arion verðlagður á markaði talsvert lægra með hliðsjón af afkomu og eigið fé. Í nýrri hlutabréfagreiningu er Arion því sagður vera „á spottprís“ en verðmat á bankanum er lækkað lítillega og gert er ráð fyrir minni efnahagsumsvifum samtímis háum grunnvöxtum.

Innherji
Fréttamynd

Engin við­varandi markaðs­setning frá 2023

Viðvarandi markaðssetning stjórnvalda í ferðaþjónustu hefur ekki verið til staðar frá árinu 2023 og fjárframlög minnkuð, segir fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu. Setja þurfi í samhengi hvernig ferðaþjónusta hér á landi hefur breyst á síðustu árum.

Viðskipti innlent