Innlent

Umhleypingar koma ferðamönnum á óvart

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Aðstæður voru erfiðar í gær þegar en björgunarsveitarfólk fann manninn eftir sjö tíma leit.
Aðstæður voru erfiðar í gær þegar en björgunarsveitarfólk fann manninn eftir sjö tíma leit. Landsbjörg

Björgunarsveitir hafa í tvígang þurft að sækja erlenda ferðamenn á hálendið við erfiðar aðstæður á rúmri viku. Björgunarsveitarmaður segir langt síðan að björgunarsveitir hafi upplifað jafn annasama tíð og undanfarið.

Björgunarsveitir voru kallaðar út í gær til að leita að ferðamanni á Mælifellssandi.

„Þetta var ágætlega umfangsmikið sem skapast fyrst og fremst vegna þess að aðstæður á hálendinu eru svona erfiðar núna. Það er byrjað að blotna ansi mikið í. Þannig að við fáum mikið af krapa og bara hreinlega ógeði. Þannig að við þurftum að sækja, þrátt fyrir að við vissum svona sirka hvar viðkomandi var, þá þurftum við að sækja að viðkomandi úr að minnsta kosti þremur áttum. Þannig að við vorum að reyna að komast upp frá Emstrum, yfir Mýrdalsjökul og upp Skaftárdal vegna þess að við vissum hreinlega ekki bara hvað væri besta leiðin. Við vorum komin með nokkra tugi vélsleða, við vorum komin með þrjá snjóbíla og töluvert af mannskap.“

Þetta er í annað sinn á um viku sem björgunarsveitir eru kallaðar út til að leita að erlendum ferðamönnum í vanda. Fyrir viku þurfti að aðstoða ferðamenn á Vatnajökli.

„Aðstæður hafa verið leiðinlegar í vetur. Það er búið að vera mjög umhleypingasamt og mikið af lægðum og við vitum það öllsömul hérna sem búum og þetta hefur auðvitað komið ferðamönnum á óvart. Það kemur alltaf erlendum ferðamönnum á óvart þessar umhleypingar bara innan dagsins og nokkurra daga. Við erum kannski með rigningu að morgni. Svo bara frystir seinni partinn og allt það sem er blautt er þar af leiðandi frosið og fólk á oft erfitt með að mæta þessum aðstæðum.“

Björgunarsveitarfólk hefur í tvígang þurft að bjarga erlendum ferðamönnum í vanda á aðeins rúmri viku.Landsbjörg

Hann segir fjölda fólks koma að útköllum sem þessum og að vinnustundirnar séu taldar í þúsundum. Veturinn hefur reynst björgunarsveitunum óvenju annasamur en færð og veður hafa haft sitt að segja.

„Það er langt síðan að við höfum upplifað svona jafn annasama tíð og verið hefur undanfarið en við ráðum alveg við þetta og erum með margar björgunarsveitir og marga sjálfboðaliða en þetta hefur verið ansi kröftugur tími núna frá áramótum.“


Tengdar fréttir

Ferða­maðurinn fundinn heill á húfi

Ferðamaðurinn sem leitað var á Mælifellssandi við Fjallabak er fundinn heill á húfi. Að sögn Landsbjargar var hann orðinn nokkuð kaldur og hrakinn en heilsast að öðru leyti vel.

Leit að ferða­manni að Fjalla­baki

Björgunarsveitir hafa verið kallaðir út í leit að ferðamanni á Mælifellssandi við Fjallabak. Tilkynning barst úr neyðarsendi konunnar rétt fyrir klukkan fimm síðdegis.

Ferðamennirnir á leið af Vatnajökli til Reykjavíkur

Ferðamennirnir sem leitað var að á Sylgjujökli í vestanverðum Vatnajökli eru komnir um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar heilir á húfi. Hjálparbeiðni barst frá fólkinu um miðjan dag, það hafði fallið í vatn og blotnað og var orðið mjög kalt. 

Að­eins snjó­bílar ráða við að­stæður í kol­vit­lausu veðri á Vatna­jökli

Björgunarsveitarmenn á tveimur öflugum snjóbílum eru nú á leið að þeim stað þar sem talið er að tveir erlendir fjallgöngumenn hafi grafið sig í fönn á Vatnajökli, við Hermannaskarð. Um er að ræða vana gönguskíðamenn frá Tékklandi sem hafa þverað Ísland að vetri til áður en þó aldrei farið yfir jökul.

Tugir leita erlends gönguskíðafólks á Vatnajökli

Fimmtíu björgunarsveitarmenn frá níu björgunarsveitum eru á leið upp á Vatnajökul vegna neyðarkalls sem barst frá neyðarsendi í gærkvöldi eða nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×