Innlent

Réðst á konu sem hafði lagt bíl sínum fyrir aftan hans

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 5. apríl.
Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 5. apríl. Vísir/Vilhelm

Karlmaður á höfuðborgarsvæðinu hefur hlotið dóm fyrir að ráðast á konu sem hafði lagt bíl sínum fyrir aftan bíl mannsins, sem fyrir vikið komst ekki leiðar sinnar. Karlinn hafði lagt í stæði konunnar en merkingar sáust ekki því snjór var yfir öllu.

Það var í mars 2020 sem konan ætlaði að leggja í merkt stæði á bílastæði fyrir utan heimili hennar. Bíl hafði verið lagt í stæði hennar og brá hún á það ráð að leggja fyrir aftan bílinn.

30-45 mínútum síðar hringdi karlmaður bjöllunni og hafði samskipti við konuna í gegnum dyrasímann. Hann hafði þá fundið út úr því að hún væri eigandi bílsins sem hindraði honum för.

Samtalið varð til þess að karlmaðurinn varð verulega æstur og var í þannig ástandi þegar konan kom niður í anddyrið til að ræða við hann. Taldi dómurinn sannað að karlmaðurinn hefði veist með ofbeldi að konunni, hrint henni ítrekað sem varð til þess að hún féll aftur fyrir sig á hurðarkarm og vegg.

Lögregla mætti á svæðið og voru þau bæði utanhúss við komuna og karlinn enn mjög æstur. Dómurinn taldi framburð konunnar stöðugan en karlsins ekki. Neitaði hann sök en sagðist í frjálsri frásögn „kannski“ hafa snert konuna lauslega. Hreyfingar hans hefðu þó ekki verið til þess fallnar að valda henni áverkum.

Dómurinn mat þennan þátt framburðar karlmannsins ekki trúverðugan. Sýnt þótti að karlmaðurinn hefði misst stjórn á sér og þá hefði hann verið fyllilega meðvitaður um líkamlegan styrk sinn og þannig aðstöðumun á milli hans og brotaþola.

Karlmaðurinn var dæmdur til að greiða konunni 200 þúsund krónur í miskabætur. Vegna tafa á málinu, sem héraðsdómur sagði úr hófi og í engu samræmi við umfang málsins, var refsingu frestað og skilorðsbundin í tvö ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×