Innlent

Álfar á sveimi í Eyjafirði í kringum Álfasetrið í Arnarnesi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Eygló er alltaf hress og skemmtileg enda hlær hún mikið og hefur gaman af öllum álfunum sínum og þeim ferðamönnum, sem koma til hennar til að fræðast um þá og þeirra líferni.
Eygló er alltaf hress og skemmtileg enda hlær hún mikið og hefur gaman af öllum álfunum sínum og þeim ferðamönnum, sem koma til hennar til að fræðast um þá og þeirra líferni. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Álfar eiga allan hug Eyglóar Jóhannesdóttur í Arnarnesi í Eyjafirði, sem hefur málað myndir af þeim og hittir þá reglulega í sveitinni sinni enda er hún með álfasetur á bænum.

Eygló og maður hennar, Jósavin Heiðmann Arason eru með gistiheimili og ferðaþjónustu á bænum sínum, sem þau hafa rekið í nokkur ár. Alls staðar eru álfar eða eitthvað sem minnir á álfa og víddir þeirra á staðnum og upp á vegg eru nokkrar myndir af álfum, sem Eygló hefur málað.

„Myndlistarkennarinn minn, hann Örn Ingi setti mér það verkefni að mála nágranna mína. Þetta eru sem sagt nágrannar mínir hérna. Ég tengdi mig inn á verurnar eða víddirnar hérna í kring og þeir komu og sögðu mér hvernig þeir lifðu og hvað þeir væru búnir að vera hérna lengi og annað,“ segir Eygló um leið og hún datt út í smástund því hún sá álf.

Álfar, sem Eygló hefur teiknað og málað.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Eygló býður upp á álfagöngur við bæinn sinn, sem eru mjög vinsælar og svo er hægt að fá sérstaka álfafræðslu hjá henni, af hverju við trúum á álfa á Íslandi og hún er líka með álfaheilun en þá finnur fólk fyrir álfunum.

En þá er spurningin, eru álfar til eða ekki?

„Þetta er náttúrulega sitthvor víddin, við erum bara í einni vídd og þeir í annarri og það er ekkert víst, ég tel að þeir viti ekkert endilega af okkur frekar en við af þeim. Það er bara einn og einn af þeirra vídd, sem veit af okkur.“

Ertu að trúa þessu eða ertu í ruglinu?

„Ég trúi þessu, ég get ekki ímyndað mér að maðurinn sé sá eini, sem hefur rétt til þess að lifa á þessari jörð, ég hef enga trú á því,“ segir Eygló brosandi.

Hér má sjá upplýsingar um það sem er í boði í Arnarnesi í Eyjafirði




Fleiri fréttir

Sjá meira


×