Innlent

Hvetur fólk til að hafa sam­band skapist flóða­á­stand

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Hjalti Jóhannes Guðmundsson, skrifstofustjóri reksturs og umhirðu borgarlandsins.
Hjalti Jóhannes Guðmundsson, skrifstofustjóri reksturs og umhirðu borgarlandsins. Vísir

Asahláku er spáð um allt land á morgun og hefur Veðurstofan gefið út gular viðvaranir vegna veðurs. Fólk er hvatt til að hreinsa frá niðurföllum til að tryggja að vatn eigi greiða leið þegar snjór og klaki bráðnar á morgun.

Fimmtudagur og frost í kringum tíu gráður líkt og síðustu daga og vikur. Á morgun verður breyting á þegar hitastig fer upp fyrir frostmark og helst þannig ef marka má spár. Asahláku er spáð um allt land á morgun og hefur Veðurstofa Íslands gefið út gular viðvaranir sem taka gildi í fyrramálið og vara fram á laugardag. 

Flughált á morgun

Þá varar veðurstofan við vexti í ám og lækjum vegna hlákunnar og minnir á mikilvægi þess að huga að niðurföllum svo vatn komist leiðar sinnar og valdi ekki tjóni. Um leið er líklegt að flughálka myndist á blautum klaka.

Fulltrúar Reykjavíkurborgar hafa síðustu daga staðið í undirbúningi fyrir morgundaginn.

„Fyrst og fremst með því að fara í alla svokallaða lágpunkta sem eru mikilvæg niðurföll þannig við erum að reyna að greiða leið vatnsins niður þannig að ekki myndist flóð,“ sagði Hjalti Jóhannes Guðmundsson, skrifstofustjóri reksturs- og umhirðu borgarlandsins. 

Munu bregðast við ábendingum

Þá verður vakt starfandi fram eftir kvöldi á morgun og fyrri part laugardags sem mun bregðast við ábendingum frá íbúum og lögreglu ef flóðaástand skapast en íbúum er bent á að hafa samband í gegnum ábendingavef Reykjavíkurborgar eða með því að hafa beint samband við lögreglu. Hjalti hvetur íbúa til að fara varlega.

„Það sem er að gerast er að það mun rigna gríðarlega mikið samkvæmt veðurspá í stuttan tíma og í svona aðstæðum þá getur myndast, þegar snjór byrjar að bráðna, glær hálka og það er mikill vindur í kortum eða fimmtán metrar á sekúndu þannig sums staðar geta myndast mjög hættulegar aðstæður.“

Fjörutíu metrar á sekúndu

Þá má reikna með að mjög hvasst verði á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli í fyrramálið þegar suðaustanstormur gengur yfir suðvestanvert landið en reikna má með hviðum allt að fjörutíu metrum á sekúndu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni þar sem segir að sömu sögu sé að segja undir Eyjafjöllum og á norðanverðu Snæfellsnesi fram eftir morgni.


Tengdar fréttir

Slökkviliðið varar við varhugaverðu ástandi á morgun

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér tilkynningu þar sem það vara við því að varhugavert ástand geti skapast á morgun, þegar Veðurstofa spáir asahláku í kjölfar hlýnandi veðurs.

Óttast flóð í Ölfusá vegna mikillar hláku framundan

Formaður Almannavarnaráðs Árborgar hvetur íbúa á Selfossi að vera ekki á óþarfa vappi í kringum Ölfusá á föstudaginn þegar spáð er asahláku á svæðinu. Elstu menn muna ekki jafn mikinn klaka í ánni eins og þessa dagana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×