Innlent

Lýsa yfir ó­vissu­stigi og síðar hættu­stigi vegna mikilla rigninga

Atli Ísleifsson og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa
Hætta er á auknu afrennsi og vatnavöxtum í ám og lækjum sem og líkur á flóðum og skriðuföllum.
Hætta er á auknu afrennsi og vatnavöxtum í ám og lækjum sem og líkur á flóðum og skriðuföllum. Vísir/Vilhelm

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna mikilla rigninga á Austfjörðum. Farið verður yfir á hættustig klukkan 18.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra. Þar segir að talsverð eða mikil rigning sé í kortunum. 

„Hætta er á auknu afrennsi og vatnavöxtum í ám og lækjum sem og líkur á flóðum og skriðuföllum, sem geta raskað samgöngum. Aukið álag getur orðið á fráveitukerfi og er fólk hvatt til að sýna aðgát og huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón.

 Frá klukkan 18:00 verður farið á hættustig Almannavarna og verður Samhæfingarstöð Almannavarna virkjuð samhliða því. Rétt fyrir hádegi var litakóði vegna úrkomuákefðar ferður úr gulu og upp í appelsínugult á Austfjörðum þar sem ákefðin er mest.

Sjá frétt á heimasíðu Veðurstofu Íslands.

Sjá ítarlegar upplýsingar um viðvaranir á vefsíðu Veðurstofu Íslands,“ segir í tilkynningunni.

Nánast samfelldri úrhellisrigningu er spáð fyrir austan næstu tvo sólarhringana. Ráðgert er að mesta úrkoman falli til fjalla og valdi vatnavöxtum í farvegum en við það aukast líkur á aurskriðum. Ester Hlíðar Jensen, ofanflóðasérfræðingur, sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að enn hefði ekki verið gripið til rýminga fyrir austan.

„Almannavarnir munu taka ákvarðanir um hvaða næsta skref er og það verður fundað með þeim í dag og þau munu stýra aðgerðum ef einhver ástæða er til.“

Eru miklar líkur á aurskriðum? 

„Eins og staðan er núna, með þessa miklu ákefð og í rauninni í þetta langan tíma - þetta er í rauninni mikil ákefð í tvo sólarhringa alveg samfellt - þá sjáum við fyrir okkur að vatnavextir í farvegum geti orðið það miklir að það verði rof og valdið skriðum.“

Almennt í vatnsveðri sem þessu er brýnt að hreinsa frá niðurföllum til að minna líkur á vatnstjóni.


Tengdar fréttir

Aukin hætta á aur­skriðum fyrir austan

Úrhellisrigningu er spáð á Austurlandi, Austfjörðum og Ströndum á Norðurlandi vestra í dag. Gera má ráð fyrir að mesta úrkoman falli til fjalla og valdi vatnavöxtum í farvegum fyrir austan, en líkur á aurskriðum aukast við þær aðstæður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×