„Mjög ólíklegt að gjaldtaka verði tekin fyrir að ganga upp að gosinu“ Ferðamálaráðherra segir brýnt að hefja uppbyggingu innviða á eldgosavæðinu í Geldingadölum. Ekki hefur verið ákveðið hversu miklum fjármunum verður varið í verkefnið. Hún býst ekki við að gjald verði tekið fyrir að göngutúr að gosinu. Innlent 20. apríl 2021 13:15
Gaf út lag og myndband um eldgosið Tónlistarkonan Elíza Newman hefur gefið út lag sem ber heitir Fagradalsfjall og fjallar það um eldgosið í Geldingadölum. Lífið 20. apríl 2021 07:01
Hætt að gjósa í tveimur nyrstu gígunum Nú þegar mánuður er liðinn frá því fyrst hóf að gjósa í Fagradalsfjalli virðist sem svo að hætt sé að gjósa í tveimur nyrstu gígunum á svæðinu. Birgir Óskarsson, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Ljósmyndir sem Birgir tók í eftirlitsflugi í dag sýna þetta glöggt. Innlent 19. apríl 2021 16:39
Skarphéðinn stýrir starfshópi um uppbyggingu á gosstöðvum Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri mun stýra starfshópi sem verður falið að koma með tillögur um uppbyggingu eldgosasvæðisins í Geldingadölum til skemmri og lengri tíma. Innlent 19. apríl 2021 13:39
Mánaðargamalt gos sem hegðar sér á óvenjulegan hátt Mánuður er í dag liðinn frá því að eldgosið í Fagradalsfjalli hófst. Gosið virðist haga sér á óvenjulegan máta þar sem hraunrennsli síðustu tíu daga hefur verið meira en fyrstu tíu daga gossins. Flest gos hegða sér á hinn veginn, að það dregur úr með tíma. Innlent 19. apríl 2021 12:20
Von á nýjum tölum um hraunflæðið í dag Vísindamenn á vegum Háskóla Íslands og Náttúrufræðistofnunar flugu yfir gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli í gær og gerðu mælingar. Von er á nýjum tölum um hraunflæði, rúmmál og flatarmál síðar í dag. Innlent 19. apríl 2021 08:06
Umferð á Suðurstrandarvegi jókst um 500 prósent vegna gossins Samkvæmt frétt á vef Vegagerðarinnar jókst umferð um Suðurstrandarveg um 500 prósent frá því að gosið hófst í Geldingadölum. Bílar 19. apríl 2021 07:00
Ekkert sérstakt ferðaveður að gosstöðvunum í dag Ferðaveður að gosstöðvunum í Geldingadölum er ekkert sérstakt í dag. Spáð er suðvestan tíu til fimmtán metrum á sekúndu fyrir hádegi en bætir nokkuð í vindinn eftir hádegi. Hægist um aftur í kvöld en búast má við éljum í allan dag að því er segir í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Innlent 18. apríl 2021 10:48
Nýtt gosop opnaðist í gígjaðrinum Nýtt gosop opnaðist á gossvæðinu við Fagradalsfjall á þriðja tímanum í dag. Opið er lítið og opnaðist á milli gíganna sem fyrir eru, á skilgreindu hættusvæði. Innlent 17. apríl 2021 15:52
Mögnuð tilfinning að taka flugprófið yfir eldgosi „Ég fékk fyrst áhuga á flugi þegar ég var í níunda eða tíunda bekk þegar það kom flugmaður í grunnskólann minn og hélt kynningu um flug,“ segir Birta Óskarsdóttir, nýútskrifaður atvinnuflugmaður. Lífið 17. apríl 2021 07:31
Sterkar vísbendingar um að eldfjallagasið muni hafa áhrif á heilsu fólks Sterklega má gera ráð fyrir að eldfjallagasið úr Geldingadölum muni leiða til aukinna öndunarfærasjúkdóma, sérstaklega hjá fólki í nálægri byggð. Börn og fólk með undirliggjandi sjúkdóma eru sérstaklega útsett fyrir menguninni. Innlent 16. apríl 2021 19:00
Laga bílaplanið og gönguleiðina inn í Geldingadali Gönguleiðin inn í Geldingadali liggur undir miklum skemmdum sökum ágangs. Jarðvegsvinna á svæðinu er hafin en gönguleiðin er orðin að drullusvaði á löngum kafla. Þá er einnig unnið að úrbótum á bílastæðinu. Innlent 16. apríl 2021 19:00
Drónað í beinni Björn Steinbekk og Vísir taka höndum saman um beina útsendingu frá gosinu í Geldingadölum. Samstarf 16. apríl 2021 16:26
Hraun rennur úr Geldingadölum í Meradali Hraun rennur nú úr Geldingadölum, þar sem eldgosið á Fagradalsfjalli hófst þann 19. mars, til austurs inn í Meradali. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Eldfjalla- og náttúruvárhóps Suðurlands. Innlent 16. apríl 2021 15:47
Hafa gefið út „opnunartíma“ fyrir gosstöðvarnar um helgina Sama fyrirkomulag verður við gosstöðvarnar í dag og um helgina og verið hefur undanfarna daga. Gossvæðið verður vaktað af lögreglu og björgunarsveitum frá kl. 12 á hádegi og fram til miðnættis en svæðinu lokað kl. 21 og rýmt kl. 23. Innlent 16. apríl 2021 08:18
Hræringarnar búnar að auka orku Svartsengis Umbrotahrinan á Reykjanesskaga hefur fært aukinn kraft í jarðhitakerfi Svartsengis, sem skilar núna meiri gufu til orkuframleiðslu hjá HS Orku. Innlent 15. apríl 2021 23:10
Viðbragðsaðilar gæta þess að fólk virði tilmæli um lokun Gosstöðvarnar á Reykjanesskaga verða lokaðar almenningi í dag vegna afar óhagstæðrar veðurspár. Sigurður Bergmann, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurnesjum, segir að viðbragðsaðilar muni vakta svæðið og gæta þess að fólk virði tilmæli um lokun ekki að vettugi. Sem stendur er mannlaust á gosslóðum. Innlent 15. apríl 2021 12:29
Grindvíkingar sultuslakir þótt gjósi bak við hólinn Nærri fjögurra vikna eldgos í bakgarði Grindavíkur virðist ekki hafa truflað daglegt líf Grindvíkinga. Það er rétt eins og gosið sé orðið eðlilegur hluti mannlífsins. Innlent 14. apríl 2021 23:20
Glóandi jörð og nýir gígar í gegnum linsu RAX Það var fjölmenni við gosstöðvarnar á Reykjanesi seint í gær, þegar Ragnar Axelsson ljósmyndari Vísis var þar að mynda. Lífið 14. apríl 2021 19:02
Vísbendingar um kvikufærslu til suðurs Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segir að verulega hafi dregið úr virkni í nyrsta gígnum á Reykjanesskaga en að sama skapi hafi virkni aukist í þeim syðstu. Kvikufærsla til suðurs gæti þýtt að um sé að ræða aðlögun að hæðarmismun í landinu því syðri gígarnir standi lægra. Innlent 14. apríl 2021 16:46
Loka gossvæðinu á morgun vegna veðurs Gossvæðið á Reykjanesi verður lokað á morgun vegna slæmrar veðurspár. Þetta er ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Innlent 14. apríl 2021 16:08
Kaleo gefur út myndband sem tekið var upp við eldgosið Í byrjun apríl sendi Kaleo frá sér lagið Skinny en það er fimmta lagið sem sveitin gefur út af komandi plötu sveitarinnar. Lífið 14. apríl 2021 14:36
Spá gasmengun á höfuðborgarsvæðinu í dag Veðurstofa spáir suðvestan 8-13 m/s á Reykjanesskaga í dag og segir gasmengun frá eldgosinu í Fagradalsfjalli munu berast til norðausturs yfir höfuðborgarsvæðið. Innlent 14. apríl 2021 06:36
Gasmengun yfir höfuðborgarsvæðinu á morgun Spá Veðurstofunnar um gasmengun frá eldstöðvunum á Reykjanesskaga gerir ráð fyrir að gasmengun berist til norðausturs yfir höfuðborgarsvæðið á morgun. Innlent 13. apríl 2021 22:22
Virknin virðist hafa aukist með nýjum gígum Ingibjörg Jónsdóttir, dósent við jarðvísindadeild Háskóla Íslands, segir að virkni á gosstöðvunum á Reykjanesi, þar sem opnuðust fjórir nýir gígar í dag, virðist hafa aukist samhliða tilkomu þeirra. Jarðvísindamenn fylgdust með sprungunum opnast í dag. Innlent 13. apríl 2021 20:34
Hefði getað skapast hætta hefði fólk verið nálægt gígunum Ingibjörg Jónsdóttir, dósent við jarðvísindadeild Háskóla Íslands, var ásamt hópi vísindamanna á gossvæðinu í morgun að kortleggja og rannsaka hraunflæði þegar allt í einu opnuðust nýir gígar og mikil virkni hófst á svæðinu. Innlent 13. apríl 2021 17:35
Varað við brennisteinsmengun í borginni Líklegt er að brennisteinsdíoxíð frá eldgosinu á Reykjanesi berist til höfuðborgarinnar og að mengunar verður vart um tíma í dag og á morgun. Viðkvæmum einstaklingum, foreldrum barna og atvinnurekendum er ráðlagt að fylgjast með loftgæðamælingum. Innlent 13. apríl 2021 13:08
Algjört ævintýri en verkefnið orðið heldur langt „Þetta er búið að vera pínu strembið en okkur líður ágætlega held ég,“ segir Bogi Adolfsson, formaður björgunarsveitarinnar Þorbjörns í Grindavík. Innlent 13. apríl 2021 13:00
Allir vilja eiga sjálfu með eldgosi Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Vísis hefur fylgst vel með gosinu við Fagradalsfjall síðan það hófst föstudaginn 19. mars síðast liðinn. Lífið 13. apríl 2021 12:01
Á annað hundrað milljón áhorfa: „Er sannarlega maður sem hefur þurft annað tækifæri“ Jarðeldarnir á Reykjanesi hafa verið á allra vörum undanfarnar vikur og hafa þótt kærkomin tilbreyting frá annars niður dregnum Covid tímum. Lífið 13. apríl 2021 11:30