Stj.mál
55 56 57 58 59 60 61 62 63 … 187 ›
Mótsagnakenndar klisjur Yfirlýsingar formanns Samfylkingar um að íhaldsmenn og frjálshyggjumenn reyni að skreyta sig fjöðrum jafnaðarmennsku eru mótsagnakenndar og klisjukenndar segir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Innlent 13.11.2005 13:37
Litlu munaði á efstu mönnum Ómar Stefánsson bæjarfulltrúi hrósaði sigri í prófkjöri Framsóknarmanna í Kópavogi sem fram fór í gær. Sigur hans var þó naumur því aðeins munaði sjötíu atkvæðum á honum og Samúel Erni Erlingssyni sem lenti í öðru sæti. Innlent 13.11.2005 12:11
Ómar leiðir listann Ómar Stefánsson leiðir lista Framsóknarflokksins í Kópavogi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar næsta vor. Hann bar sigur úr býtum í prófkjöri Framsóknarflokksins í gær og hlaut 666 atkvæði í fyrsta sæti listans. 2.556 greiddu atkvæði. Ómar er eini sitjandi bæjarfulltrúi flokksins sem gaf kost á sér í prófkjörinu. Innlent 13.11.2005 08:51
Ómar Stefánsson leiðir í prófkjöri Framsóknarmanna Ómar Stefánsson leiðir í prófkjöri Framsóknarmanna í Kópavogi þegar búið er að telja 720 atkvæði af tvöþúsund. Samúel Örn Erlingsson kemur næstur Ómari í baráttunni um efsta sætið og Una María Óskarsdóttir kemur næst honum. Innlent 12.11.2005 21:25
Segir frjálshyggjuna á undanhaldi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir frjálshyggjuna á hröðu undanhaldi út um allan heim og líka á Íslandi. Á Flokksstjórnarfundi í dag deildi hún hart á Sjálfstæðismenn og sagði þá ekki hafa verið brautryðjendur í íslenskum stjónmálum í áratugi. Innlent 12.11.2005 19:52
Skilgreina pólitísku miðjuna Framsóknarmenn vilja fara yfir og skilgreina hvað felst í hugtakinu pólitísk miðja, ekki síst í ljósi þess að bæði Samfylking og Sjálfstæðisflokkur sækja nú inn á miðjuna. Ályktun þessa efnis var samþykkt undir lok miðstjórnarfundar Framsóknarflokksins sem lauk um klukkan fjögur. Innlent 12.11.2005 16:41
Góð þátttaka í prófkjöri Framsóknar Um tólfhundruð manns höfðu kosið í prófkjöri Framsóknarmanna nú klukkan fjögur en kjörstaðir eru opnir til átta í kvöld. Haukur Ingibergsson formaður kjörstjórnar sagði kjörsókn hafa verið jafna og þétta í allan dag. Um opið prófkjör er að ræða og geta allir þeir sem eru á kjörskrá í Kópavogi tekið þátt. Kjörfundur fer fram í Smáraskóla í Kópavogi. Innlent 12.11.2005 16:12
Stjórna saman í fyrsta sinn í 40 ár Stóru flokkarnir í Þýskalandi, Kristilegir demókratar og Jafnaðarmannaflokkurinn, hafa komist að samkomulagi um stjórnarmyndun, og verður Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra demókrata, næsti kanslari landsins, fyrst allra kvenna. Erlent 12.11.2005 12:33
250 höfðu kosið á hádegi 250 höfðu tekið þátt í prófkjöri Framsóknarflokksins í Kópavogi á hádegi. Fjórtán eru í framboði, þar af fimm sem stefna á fyrsta sæti á lista flokksins fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar. Innlent 12.11.2005 12:21
Frjálshyggjan á hröðu undanhaldi Frjálshyggjan er á hröðu undanhaldi um allan heim, líka á Íslandi, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar á flokksstjórnarfundi í morgun. Hún sagði stjórnmálabaráttuna á Íslandi standa milli Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Innlent 12.11.2005 12:10
Treysta Stefáni Jóni betur Sextíu og sjö prósent þeirra borgarbúa sem taka afstöðu treysta Stefáni Jóni Hafstein betur en Steinunni Valdísi Óskarsdóttur sem næsta borgarstjóra. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar Frjálsrar verslunar. Þá fengi Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta í borgarstjórn ef kosið yrði nú. Innlent 12.11.2005 00:21
Átta bítast um efsta sæti Prófkjör Framsóknarmanna í Kópavogi hófst klukkan tíu í morgun. Fjórtán eru í framboði og þar af átta sem gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar sem haldnar verða næsta vor. Innlent 12.11.2005 09:44
Sveitarstjórnarmenn axla ekki hagstjórnarábyrgð Sveitarstjórnarmenn voru sakaðir um að axla ekki hagstjórnarábyrgð með viðunandi hætti, í harðri ádrepu formanns Samtaka atvinnulífsins á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í dag. Forsætisráðherra boðaði þar að málefni aldraðra skyldu færð frá ríki yfir til sveitarfélaganna. Innlent 10.11.2005 19:55
Spáir verðhjöðnun Forsætisráðherra segir að tölur Hagstofunnar í dag, um að vísitala neysluverðs hafi lækkað á milli mánaða, séu vendipunktur og fram undan sé verðhjöðnun. Innlent 10.11.2005 19:35
Hlutverk sveitarfélaga að bæta kjör leikskólakennara Fjögur hundruð lærðir leikskólakennarar hafa valið sér annan starfsvettvang vegna lágra launa í faginu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að það sé alfarið hlutverk sveitarfélaganna að bæta úr því. Innlent 10.11.2005 19:15
Afsláttakortakerfi vegna læknishjálpar óréttlátt Afsláttarkortakerfi vegna læknishjálpar er mjög óréttlátt eins og það er í dag að mati Margrétar Frímannsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, og bitnar það verst á þeim sem eru með langvarandi sjúkdóma. Innlent 10.11.2005 17:28
Búist við 67 milljóna rekstarafgangi á næsta ári Búist er við að rekstarafgangur Mosfellsbæjar verði jákvæður um 67 milljónir króna á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætlun sem lögð var fram í bæjarráði í dag. Í tilkynningu frá Mosfellsbæ segir að gert sé ráð fyrir að heildartekjur verði 2,9 milljarðar en launakostnaður 1,5 milljarður, þar af renna 1,2 milljarður til fræðslu-, íþrótta- og tómstundamála. Innlent 10.11.2005 13:27
Vill banna landeigendum að selja skotveiðiheimild Fuglavinurinn, sjálfstæðismaðurinn og þingmaðurinn Halldór Blöndal vill gera þær breytingar á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum, að landeigendum verði bannað að selja skotveiðimönnum heimild til að skjóta fugla á landareignum sínum. Innlent 10.11.2005 10:19
Líklega prófkjör hjá VG á Akureyri Akureyrarfélag Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs mun að öllum líkindum efna til prófkjörs til að raða í fjögur efstu sæti framboðslista flokksins fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar. Tillaga þess efnis verður rædd á fundi í félaginu næsta mánudag og er talið líklegt að hún verði samþykkt. Innlent 10.11.2005 07:45
Sakar stjórnvöld um skilningsleysi Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, gagnrýnir stjórnvöld harkalega fyrir skilningsleysi á stöðu útflutningsgreina og segir hátt gengi íslensku krónunnar hafa smám saman verið að draga tennurnar úr útflutningsgreinunum og ferðaþjónustunni án þess að nokkuð sé gert. Þetta segir hann í Morgunblaðinu í dag. Innlent 10.11.2005 07:51
Ráðherra taki þátt í málefnalegri umræðu um stúdentspróf Ungliðar í Vinstri hreyfingunni - grænu framboði á Akureyri eru andvígir styttingu náms til stúdentsprófs og skora á menntamálaráðherra að taka þátt í málefnalegri og samfélagslegri umræðu um skerðingu náms til stúdentsprófs og samræmd stúdentspróf í stað þess að hunsa nemendur og koma sér undan umræðu líkt og gerst hafi í Menntaskólanum á Akureyri á þriðjudaginn. Innlent 10.11.2005 07:43
Ráðherra svaraði ekki kærunum Íbúar í Grafarvogi eru afar ósáttir við úrskurð umhverfisráðherra varðandi mat á umhverfisáhrifum fyrsta áfanga Sundabrautar og landfyllingu við Gufunes. Fjórar kærur voru lagðar fram í málinu og segir fulltrúi íbúa að ráðherra hafi engan veginn svarað kærunum. Innlent 10.11.2005 00:10
Barnabætur lækka um tvo milljarða Fram kemur í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Ögmundar Jónassonar, þingmanns vinstri grænna, að opinber útgjöld til barnabóta hafi lækkað frá árinu 1991. Ögmundur segir stjórnina ekki hafa staðið við gefin fyrirheit. Innlent 9.11.2005 22:58
Steingrímur gagnrýndi fyrirhuguð álver Áform um þrjú ný álver á Íslandi urðu tilefni snarpra umræðna á Alþingi í dag. Þingmenn Vinstri - grænna gagnrýndu ríkisstjórnina harðlega en forsætisráðherra sakaði Vinstri - græna um að vilja banna fólki að hugsa um framtíðina. Innlent 9.11.2005 19:46
Umhverfisráðherra setur skilyrði vegna framkvæmdanna Umhverfisráðherra hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum fyrsta áfanga Sundabrautar og landfyllingar við Gufunes. Hann setur þó skilyrði vegna framkvæmdanna um samráð við íbúa Hamrahverfis og við hafnaryfirvöld og hagsmunaaðila í Sundahöfn. Innlent 9.11.2005 17:03
Óhollusta í framhaldsskólum Menntamálaráðuneytið mun ekki beita sér með beinum hætti geng því að óhollusta verði í boði í framhaldsskólum. Fjórðungur framhaldsskóla í landinu er ekki með mötuneyti en allir framhaldskólarnir bjóða hins vegar upp á sælgæti og gos til sölu. Innlent 9.11.2005 16:24
Enn engin svör vegna meints fangaflugs Íslenskum stjórnvöldum hafa enn engin svör borist frá bandarískum stjörnvöldum vegna fangaflugsins svokallaða. Halldór Ásgrímsson segir aldrei spurt um farþega í vélum sem hér fari um í borgaralegu flugi. Aðalatriðið nú sé hvort ólögleg fangelsi finnist í Evrópu. Innlent 9.11.2005 09:53
Enginn ágreiningur milli ASÍ og SA um lög fyrir starfsmannaleigur Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir það miður að nefnd um starfsemi starfsmannaleiga hafi starfað í rúmt ár án niðurstöðu. Hann hafnar því þó að ágreiningur sé milli ASÍ og Samtaka Atvinnulífs í nefndinni. Félagsmálaráðherra hefur lofað lögum fyrir jól. Innlent 9.11.2005 08:06
Ekki stendur til að selja RÚV Halldór Ásgrímsson segir að ekki standi til að selja Ríkisútvarpið þótt nú sé verið að endurskoða rekstrarform stofnunarinnar í tengslum við ný lög um RÚV. Hann vísar fullyrðingum Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, þess efnis að boðuð formbreyting á rekstri RÚV sé dulbúin einkavæðing alfarið á bug. Innlent 9.11.2005 07:55
Mismunað í velferð Dæmi eru þess að fjölskyldur aldraðra á hjúkrunarheimilinu Skjóli hafi ráðið sérstaka starfsmenn vegna ónógrar þjónustu. Heilbrigðisráðherra kveðst andvígur einu velferðarkerfi fyrir vel stæða og öðru fyrir hina sem minna hafa. Innlent 9.11.2005 01:22
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent