Innlent

Réðst á tólf ára dreng

44 ára vörubílsstjóri, Hreggviður Heiðarsson, réðst á tvo unga drengi, tólf og þrettán ára síðasta laugardagskvöld. Hluti árásarinnar var tekin upp á GSM síma og hefur DV myndskeiðið undir höndum. Ennfremur má sjá myndskeiðið hér á Vísi. Á því sést hvernig Hreggviður veitist að tólf ára dreng og fleygir honum í jörðina. Foreldrar drengjanna tveggja eru æfir og segja Hreggvið ekki í lagi. Nánar verður fjallað um málið í DV í dag en hér er myndskeið sem sýnir árásina svart á hvítu. Vörubílsstjórinn Hreggviður hefur verið kærður til lögreglu vegna málsins..



Fleiri fréttir

Sjá meira


×