Innlent

Eldur í Hafnarfirði

Eldur kviknaði í bátaskýli við Ásbraut í Hafnarfirði laust fyrir klukkan hálf átta í gærkvöldi. Enginn bátur var inni í skýlinu en töluverður eldsmatur þar inni. Nærliggjandi skýli voru í hættu en slökkviliðinu gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins. Ekki fékkst staðfest hvernig eldur kviknaði en grunur leikur á íkveikju. Lögreglan rannsakar málið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×