Innlent

Fimm bíla árekstur

Fimm bíla árekstur varð um hálffjögurleytið í gær skammt sunnan við Smáralind, norðan við gatnamót Arnarnesvegar og Reykjanesbrautar. Fjórir fólksbílar voru í röð á götunni og keyrði hópbifreið aftan á þann sem síðastur var í röðinni, sem olli því að hann rakst aftan á næsta bíl og svo koll af kolli. Ellefu manns voru í bílunum fimm og voru átta þeirra fluttir á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Meiðsl þeirra voru ekki alvarleg og voru allir útskrifaðir af spítalanum í gær með minniháttar áverka.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×