Innlent

Gæsluvarðhald yfir Breta staðfest

Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir breskri konu sem grunuð er um ávísanamisferli hér á landi í maí síðastliðnum. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði konuna um miðjan júní í gæsluvarðhald sem renna á út á morgun, 23. júní. Konan hélt af landi brott ásamt félaga sinum 9. júní með Norrænu, en parið hafði með sér í óleyfi tvær bifreiðar sem teknar höfðu verið á leigu. Bílaleigurnar sem áttu bílana höfðu beðið lögreglu að hafa upp á þeim. Parið var handtekið við komuna til Danmerkur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×