Viðskipti innlent

Kosningaslaki rýrir lánshæfismat íslenska ríkisins

Mikill viðsnúningur varð til hins verra á gjaldeyris- og hlutabréfamarkaði í gær eftir að matsfyrirtækið Standard & Poor"s greindi frá því að það hefði lækkað lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt úr AA- í A+ og fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt í A-1 úr A-1+. S&P lækkaði einnig lánshæfiseinkunnir Íbúðalánasjóðs og Landsvirkjunar.

Krónan féll um 2,9 prósent eftir að hafa styrkst um eitt prósent áður en fréttirnar bárust. Fór gengisvísitalan yfir 130 í fyrsta skipti í langan tíma. Hlutabréf lækkuðu einnig í verði; mest bréf í bönkum og fjármálafyrirtækjum.

Jafnframt lækkaði S&P lánshæfiseinkunn fyrir langtímaskuldbindingar í íslenskum krónum en einkunn fyrir skammtímaskuldbindingar var staðfest.

Lækkunin skýrist af minnkandi aðhaldi í ríkisfjármálum í aðdraganda þingkosninga sem mun valda þenslu og beinir S&P spjótum sínum að nýlegum lækkunum á matvælaskatti. „Þensluhvetjandi ríkisfjármál og spenna á vinnumarkaði skapa hættu á að verðbólguþrýstingur magnist enn. Þetta gæti leitt til frekari vaxtahækkana, en fyrir vikið yrði aðlögunarkerfið sársaukafyllra," segir í skýrslu S&P.

„Óheppilegt og óvænt, sérstaklega í ljósi þess að matsfyrirtækið Moody's gefur okkur hæstu einkunn," segir Geir Haarde forsætisráðherra. „Ég tel að þeir [S&P] séu ekki á réttu róli með þetta mat sitt." Um þau varnaðarorð sem komu fram í síðustu skýrslu S&P í sumar segir Geir: „Það var auðvitað brugðist við þeim. Við gripum hér til sérstakra aðgerða í sumar. Við hægðum á öllum framkvæmdum þar til ljóst var að óhætt var að hleypa þeim af stað á nýjan leik." Geir segir að ekki verið hvikað frá núverandi stefnu. „Krónan er ekki að hrynja."

Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir að þessi breyting komi honum örlítið á óvart, enda hafi ríkið ekki verið talið vera í neinni lánsfjárþörf og verið að greiða niður skuldir. Seðlabankinn spáir því ekki að vextir muni hækka frekar, þótt ekkert sé hægt að útiloka í þeim efnum. „Við teljum að það þurfi þá mikil og vaxandi ótíðindi til að vextir hækki frekar."

Glitnir er eini bankinn sem er með lánshæfismat frá S & P og var það staðfest.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×