Viðskipti innlent

Sjálfkjörið í stjórn Straums

Sjálfkjörið verður í stjórn Straums-Burðaráss fjárfestingar-banka. Þeir sem hafa boðið sig fram sem aðalmenn eru eftirtaldir: Björgólfur Thor Björgólfsson, Birgir Már Ragnarsson, Guðmundur Kristjánsson, Friðrik Hallbjörn Karlsson og James Leitner. Leitner er forstjóri bandaríska fjárfestingarsjóðsins Falcon Management Corporation í New Jersey.

Þau Eggert Magnússon og Þórunn Guðmundsdóttir ganga út úr stjórn en Þórunn tekur sæti í varastjórn félagsins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×