Viðskipti innlent

Hlutabréf eru enn á uppleið

Kátt í Kauphöllinni. Úrvalsvísitalan hélt áfram að hækka í gær.
Kátt í Kauphöllinni. Úrvalsvísitalan hélt áfram að hækka í gær.

Úrvalsvísitalan hélt áfram að hækka í gær og náði hún nýjum methæðum í 8.131 stigi í 22,7 milljarða viðskiptum. Þar með hefur hún hækkað um 26,8 prósent á árinu, þar af um 3,5 prósent eftir kosningar. Þrjú Kauphallarfélög hafa hækkað um meira en helming á árinu, Atlantic Petroleum, um 96 prósent, Vinnslustöðin um 84 prósent og Exista um rúm fimmtíu prósent.

Margir fjárfestar búast við að væntanleg 176 milljarða króna yfirtaka Björgólfs Thors Björgólfssonar í Novator á Actavis nái fram að ganga en á markaði sjást þau merki að hluthafar séu farnir að endurfjárfesta í bönkum og rekstrarfélögum fyrir þann pening sem þeir fá fyrir bréf sín. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa bankar keypt hlutabréf af fjárfestum í Actavis sem gefur þeim síðarnefndu færi á að endurfjárfesta innanlands, til dæmis í íslenskum hlutabréfum. Talið er að allt að 100 milljarðar króna gætu farið til endurfjárfestinga innanlands - það er ef Novator tekur yfir Actavis.

Þarna vinnst tvennt: Bankinn, sem fjármagnar sig til tiltölulega ódýrt, fær til sín aukin viðskipti. Kúnninn sparar sér tíma á því að selja hlut sinn í Actavis núna í stað þess að bíða eftir greiðslum vegna hugsanlegrar yfirtöku.

Það sem hefur ekki síður áhrif á hlutabréfamarkaðinn er styrking krónunnar.

Krónan styrktist um hálft prósent í gær og fór gengisvísitalan niður fyrir 113 stig í fyrsta skipti síðan snemma í mars 2006. Krónan hefur styrkst verulega í maímánuði eða um rúm fjögur prósent. Evrópski fjárfestingarbankinn (EIB) út krónubréf að verðmæti fjórir milljarðar króna í gær en annars hefur krónubréfaútgáfa verið róleg í mánuðinum að sögn greiningardeildar Kaupþings.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×