Viðskipti innlent

Landsbankinn í kauphugleiðingum

Landsbanki Íslands.
Landsbanki Íslands.

Talið er að Landsbankinn hyggist gera tilboð í írska fjármálafyrirtækið Irish Nationwide Building Society, sem er með höfuðstöðvar í Dublin. Írska blaðið Irish Times sagði um helgina, án þess þó að geta heimildar, að Landsbankinn telji írska fyrirtækið falla vel að starfsemi bankans.

Irish Nationwide Building Society sinnir hefðbundinni fjármálastarfsemi en mesta umfangið liggur á sviði fasteignalána á Írlandi. Að sögn Irish Times vildu forsvarsmenn Landsbankans ekki tjá sig um hugsanleg kaup á fyrirtækinu.

Þá segir blaðið ennfremur að forsvarsmenn írska bankans hafi greint starfsmönnum sínum á ársfundi fyrirtækisins um þarsíðustu helgi að stjórnin vonist til að sala á bankanum verði gengin í gegn fyrir árslok, að sögn Irish Times.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×