Viðskipti innlent

Novator gerir yfirtökutilboð í Actavis

Novator, fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur ákveðið að leggja fram frjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Actavis Group. Tilboðið hljóðar upp á 0,98 evrur á hlut, jafnvirði 85,23 króna. Gengið stendur nú í 78,2 krónum á hlut.

Félög tengd Novator eiga nú þegar um 38,5 prósent af hlutafé félagsins í A-flokki en Björgólfur Thor er jafnframt stjórnarformaður þess. Markmið Novator er að eignast allt hlutafé félagsins, að því er segir í tilkynningu frá félaginu.

Yfirtökutilboðið er 9 prósentum yfir lokagengi Actavis í Kauphöll Íslands í gær en félagið er metið á um 287 milljarða krónur.

Í tilkynningu um viðskiptin segir að Novator muni beita sér fyrir aukinni áhættusækni í rekstri félagsins, fækka í stjórn og birta aðeins á opinberum vettvangi þær upplýsingar sem almennt er krafist af óskráðum félögum. Þá sé það mat Novator að sú aukna áhætta, sem fylgir slíkri skuldsetningu og stefnu, sé ekki heppileg fyrir almenna fjárfesta og því rétt að gefa öðrum fjárfestum tækifæri tilútgöngu áður en að slíkum breytingum kemur.

Novator hyggst afskrá félagið af markaði eins fljótt og auðið er.

Þá segir ennfremur að þetta sé hæsta gengi sem boðið hafi verið fyrir hlutabréf í félaginu og ríflega 21 prósenti hærra en meðaltals lokagengi síðastliðinna sex mánaða. „Það er mat Novator að verðið endurspegli á mjög sanngjarnan hátt raunvirði félagsins á þessum tíma, einkum og sér í lagi í samanburði við önnur samheitalyfjafyrirtæki á markaði og nýlegar yfirtökur í geiranum," að því er segir í tilkynningunni.

Umtalsverður hluti kaupverðsins verður fjármagnaður með með lánsfé og verður Actavis verulega skuldsett að yfirtökunni lokinni, að því er tilkynningin segir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×