Viðskipti innlent

Ný stjórn reynist fjármálamörkuðum vel

Verði af myndun nýrrar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, eins og útlit er fyrir, mun stjórnin að öllum líkindum reynast fjármálamörkuðum nokkuð hagfelld, að sögn greiningardeildar Glitnis, sem skrifar um áhrif nýrrar ríkisstjórnar á íslenskt fjármálalíf. Deildin telur ekki líkur á miklum breytingum og þykir ólíklegt að skattar á fyrirtæki og fjármagnstekjur verði hækkaðir.

Þá segir í áliti greiningardeildarinnar í Morgunkorni hennar í dag að líklegast sé að ný stjórn muni halda áfram þeirri þróun til markaðs- og alþjóðavæðingar sem einkennt hafi íslenskt efnahagslíf frá upphafi tíunda áratugar síðustu aldar.

„Enn fremur verður fróðlegt að fylgjast með hvort ráðist verður í umfangsmiklar breytingar á landbúnaðarkerfinu en innan beggja flokka er áhugi á slíkum breytingum. Einnig eru líkur til að frekari breytingar verði gerðar á fyrirkomulagi Íbúðalánasjóðs, þar sem Framsóknarmenn hafa ráðið miklu undanfarin 12 ár," segir greiningardeild Glitnis sem þó bendir á að ýmis mál skilji á milli flokkanna. Þar á meðal séu Evrópumálin en Samfylkingin hefur oftsinnis lýst yfir áhuga sínum á viðræðum við Evrópusambandið um fulla aðild og upptöku evru. Sjálfstæðisflokkur hafi hins vegar verið andvígur slíku. Bendir deildin þó á, að sú andstaða hafi dvínað á undanförnum árum.

„Raunar má telja ólíklegt að stór skref yrðu stigi í átt til Evrópusambandsaðildar á næstu misserum og því kunna flokkarnir að ná sátt um að flýta sér hægt í þeim efnum," segir greiningardeild Glitnis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×