Viðskipti innlent

Úrvalsvísitalan slær enn eitt metið

Kauphöll Íslands.
Kauphöll Íslands.

Enn og aftur sló Úrvalsvísitalan met í Kauphöll Íslands en hún endaði í 8.131 stigi við lokun markaðar. Vísitalan hefur hækkað hratt á árinu, eða um 26,83 prósent.

Vísitalan sló met í gær þegar hún lokaði í rétt rúmum 8.100 stigum. Hækkunin í dag nam 0,36 prósentum.

Gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hækkaði mest í dag, eða um 3,85 prósent. Þetta er önnur stóra hækkun félagsins á jafn mörgum dögum en í gær hækkaði gengi bréfa í félaginu um 10,5 prósent.

Mesta lækkunin varð hins vegar á bréfum í Mosaic Fashions en gengi bréfanna lækkaði um 2,66 prósent í Kauphöll Íslands í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×